Fréttir
Sjúkraflutningar Suðurlandi
Breyting á sjúkraflutningum frá lögreglu yfir til sjúkrahússins
Fyrst um sinn munu sjúkraflutningarnir hafa aðstöðu áfram í sjúkrabílageymslunni við lögreglustöðina, á heilbrigðisstofnuninni og hjá björgunarfélaginu í Tryggvabúð. Viðræður hafa verið í gangi milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Brunavarna Árnessýslu og Björgunarfélags Árborgar um samstarf um að byggja hús yfir starfsemi þessara aðila.
Ármann Höskuldsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður sjúkraflutninga en hann hefur starfað sem lögreglu- og sjúkraflutningamaður undanfarin ár hjá Sýslumannsembættinu í Árnessýslu. Hefur Ármann haft umsjón með undirbúningi varðandi flutning sjúkraflutninga til heilbrigðisstofnunarinnar.
Sjúkraflutningar í Árnessýslu ná yfir sveitarfélögin Árborg, Hveragerði, Ölfus, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Hrunamannahrepp, Villingaholtshrepp, Hraungerðishrepp og Gaulverjabæjarhrepp. Íbúafjöldi á þjónustusvæðinu var 13.300 um síðustu áramót. Til viðbótar við framangreindan íbúafjölda eru á þjónustusvæðinu um 4.000 frístundahús og fjölsóttustu ferðamannastaðir landsins, þar sem koma tugir þúsunda ferðamanna á hverju ári. Þá liggur einn fjölfarnasti hluti hringvegar landsins um þjónustusvæðið.
Reikna má með því að á árinu 2005 verði sjúkraflutningar samtals um 900 hjá Sýslumannsembættinu í Árnessýslu, en þeim hefur fjölgað að meðaltali um tæplega 20% á ári frá 2001.
Til viðbótar við framangreinda sjúkraflutninga sýslumannsembættisins eru um 250 sjúkraflutningar á ári með sjúkraflutningabíl Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Er þar um að ræða flutninga á aðrar sjúkrastofnanir. Samtals má því gera ráð fyrir, að sjúkraflutningar á þjónustusvæðinu í Árnessýslu verði um 1100-1200 á árinu 2005.
Neyðarlínan 112 mun sjá greiningu á alvarleika atburða og boðun neyðarsveita svo og sjúkrabíla eins og hefur verið til þessa.

