Fréttir
Við erum 10 ára
Neyðarlínan, 112, fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og efnir af því tilefni til ráðstefnu um hlutverk 112 og þróun neyðarþjónustu föstudaginn 10. febrúar næstkomandi. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum kl. 13-17 undir yfirskriftinni 112 í tíu ár – hvað hefur breyst, hvað er framundan? Hún er öllum opin án endurgjalds. Fimm innlendir fyrirlesarar og einn erlendur fjalla þar um hlutverk og skyldur 112 við almenning og viðbragðsaðila og þróun neyðarþjónustu.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra setur ráðstefnuna með ávarpi og að því búnu verður tilkynnt um val á skyndihjálparmanni Rauða krossins 2005. Fyrirlesarar verða: Jónína Sigurðardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum, Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá landlækni, Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS, Sigurgeir Guðmundsson og Kristján Maack frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Jyrki Landstedt, framkvæmdastjóri 112 í Finnlandi.
Ráðstefnustjóri verður Björn Friðfinnsson. Ráðstefnan er sem fyrr segir öllum opin en þátttakendur eru vinsamlega beðnir að skrá sig í síma 570 2000, á www.112.is eða með tölvupósti á 112@112.is fyrir þriðjudaginn 7. febrúar.

