Fréttir
Ráðstefna 112 og 112 dagurinn heppnaðist vel
Mikil þátttaka í 112 deginum víða um land
Fjöldi fólks heimsótti viðbragðsaðila víða um land á 112 daginn sem haldinn var á laugardaginn. Íbúar höfuðborgarsvæðisins létu sitt ekki eftir liggja og fjölmenntu á opið hús í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð og tækjasýningar þar og við Reykjavíkurhöfn. Þá vakti hin tilkomumikla lest margvíslegra björgunartækja sem ók um svæðið verðskuldaða athygli. Dómsmálaráðherra, slökkviliðsstjóri SHS, forstjóri Landhelgisgæslunnar, ríkislögreglustjórinn og formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar ræstu hana af stað úr Skógarhlíð og síðan ók hún um höfuðborgarsvæðið í blíðskaparveðri í um þrjú kortér.
Efnt var til sambærilegrar dagskrár á fjölmörgum stöðum vítt og breitt um landið og var aðsókn yfirleitt góð.
Verðlaun í Eldvarnagetrauninni afhent
Í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kynntu 112, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauða kross deildirnar á höfuðborgarsvæðinu, ríkislöreglustjórinn, SHS, Vaktstöð siglinga, Vegagerðin og slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss starfsemi sína í bílageymslu SHS sem segja má að hafi verið breytt í sýningarhöll í tilefni dagsins.
Við þetta tækifæri afhentu Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, og Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri 14 krökkum verðlaun fyrir að hafa sent inn réttar lausnir í Eldvarnagetrauninni 2005.
Vel heppnuð afmælisráðstefna
Daginn áður hélt 112 vel heppnaða afmælisráðstefnu á Hótel Loftleiðum undir yfirskriftinni 112 í tíu ár – hvað hefur breyst, hvað er framundan? Að því búnu var haldinn afmælisfagnaður í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð fyrir þátttakendur ráðstefnunnar og aðra boðsgesti. Fyrr um daginn var ljósmyndasýningin Útkall 2005 opnuð í Kringlunni en þar er að finna úrval mynda af störfum viðbragðsaðila á síðasta ári. Óhætt er að segja að sýningin hafi vakið mikla athygli gesta Kringlunnar en hún stendur til föstudagsins 17. febrúar.

