Fréttir
Viðlagahandbók
Það sem viðkemur öryggi heimilisins
Fréttir af slysum og eldsvoðum eru nánast daglegt brauð. Stundum fylgir það slysafréttum að sá sem næstur var, stundum nágranni, foreldri eða barn hafi með snarræði sínu getað komið í veg fyrir að verr færi. Þá eru ekki talin með, minni óhöpp sem verða í heimahúsum daglega, oft á dag. Það krefst lágmarkskunnáttu og lágmarksbúnaðar að bjarga eða hjálpa þegar hætta steðjar að.
Við hættuástand verða oft alvarlegar afleiðingar sem hefðu ekki þurft að verða ef forvarna og fræðslu hefði notið við.
Náttúruvá er órjúfanlegur þáttur í lífi okkar. Fegurðin í landslaginu getur verið afleiðing hamfara eins og eldgosa og jarðskjálfta. Það sem einnig einkennir íslenskt náttúrufar eru þau vályndu veður sem hér geta orðið með snjóflóðum og aurskriðum. Sem dæmi, þá urðu á árinu 2000 jarðskjálftar á Suðurlandi sem skelfdu marga. Við vorum heppin í það sinn og enginn slasaðist. Þann 17. júní voru fjölskyldur saman að heiman að fagna þjóðhátíðardegi Íslendinga. Mikil mildi var að flestir voru að heiman þegar innihald skápa, hillur og aðrir munir heimilisins tókust á loft og hentust út á gólf. Þann 21. júní höfðu margir sinnt forvörnum eftir að hafa séð afleiðingar fyrri skjálftans. Leiða má líkur að því að það, með öðru hafi komið í veg fyrir meiðsli.
Lesið þessa handbók og notið hana sem uppfletturit. Atburðir sem hér um ræðir eru oftast þess eðlis að bregðast verður við, fljótt og örugglega. Því er nauðsynlegt að undirbúa sig og heimilisfólk sitt með því að lesa hana í sameiningu yfir, ræða saman um atburði sem geta orðið og æfa saman, það sem hægt er. Til að auðvelda þetta enn frekar er hægt að gera heimilisáætlun (einnig á bls. 5). Heimilisáætlun er leiðarvísir um, að hverju er að hyggja í forvörnum. Samanlagt eru heimilisáætlunin og þessi viðlagahandbók eitt besta hjálpartækið fyrir heimili, sem völ er á, til þess að mæta áföllum sem hér um ræðir.
vidlagahandbókin er samvinnuverkefni Almannavarnadeildar ríkislögreglustjórans, Rauða kross Íslands, Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landssambands sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna, Eitrunarmiðstöðvar Landspítala-háskólasjúkrahúss, forvarnadeildar ríkislögreglustjórans og Neyðarlínunnar.

