Fréttir

Grunnatriði eldvarna á sjö erlendum tungumálum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út tvo bæklinga þar sem fjallað er um grunnatriði eldvarna á sjö tungumálum, auk íslensku.

Efnið er ætlað innflytjendum og útlendingum sem starfa hér á landi um lengri og skemmri tíma. Bæklingarnir eru tveir og í þeim er fjallað um grundvallaratriði á borð við reykskynjara, flótta úr brennandi íbúð og slökkvitæki.

Þá er fjallað um neyðarnúmerið, 112, og Hjálparsíma Rauða krossins en bæklingarnir eru gefnir út í samvinnu við 112 og Rauða kross Íslands.

Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að útgáfa efnisins sé tímabær enda hafi starfsmenn liðsins margsinnis komist að því að útlendingar hafi takmarkaða þekkingu á eldvörnum og búi við aðstæður þar sem eldvörnum er ábótavant.

- Við erum með þessari útgáfu einfaldlega að svara kalli tímans og veita nýjum íbúum lágmarksþjónustu-. Bæklingunum verður nú á næstunni dreift á staði sem líklegt er að útlendingar heimsæki og starfsmenn forvarnadeildar okkar munu dreifa þeim þar sem þurfa þykir. Auk þess er unnt að nálgast þá hér á vefnum.

Þekki fólk útlendinga sem ekki geta tileinkað sér efni um eldvarnir á íslensku hvet ég það til að benda á þetta nýja efni okkar, segir Jón Viðar.

Garðar H. Guðjónsson kynningarráðgjafi annaðist útgáfu bæklinganna og Alþjóðahúsið þýddi efnið á ensku, pólsku, rússnesku, litháísku, spænsku, tælensku og serbnesku.

Efni bæklinganna hefur einnig verið birt í blaði Alþjóðahússins, Slökkviliðsmanninum og Fréttablaðinu og náð þannig mikilli útbreiðslu.

Grunnatriði eldvarna á íslensku, pólsku, rússnesku og litháísku (PDF)SHS112-is

Grunnatriði eldvarna á ensku, spænsku, tælensku og serbnesku (PDF)SHS112-en






Leita á vefnum



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica