Fréttir

Nýr samningur um björgunarstörf á Höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan hafa skrifað undir nýjan samning við svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á svæði 1 (höfuðborgarsvæðinu).


Samningurinn fastmótar áralangt samstarf lögreglu og björgunarsveita við leit og björgun að týndu fólki og viðbrögð við slysum. Hann skýrir og skilgreinir boðunarferli björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu, hvenær þær eru boðaðar út og hvaða verkefnum þær eiga að sinna.

Samningurinn tekur m.a. á verkaskiptingu milli aðila.

Samkvæmt lögum bera lögreglustjórar ábyrgð á leit og björgun á landi, hver í sínu umdæmi og ber þeim að samhæfa störf þeirra sem koma að leitar- og björgunaraðgerðum. Lögregla kallar björgunarsveitir til aðstoðar ef þörf krefur.

Þá eru björgunarsveitir samkvæmt lögunum hjálparlið lögreglu við leit og björgun á landi og við sérstök gæslustörf. Undir það falla verkefni svo sem leit að týndu fólki, hjálpar- og björgunarstörf vegna óveðurs og ófærðar og björgunarstörf vegna slysa fjarri alfaraleið.

Við störf sem hjálparlið lögreglu starfa björgunarsveitir á ábyrgð hennar.

Svæðisstjórn björgunarsveita fer með tæknilega stjórn björgunarsveita við aðgerðir.


Samningur þessi er byggður á samningi sem gerður var milli lögreglu og björgunarsveita sem er byggður á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laga um björgunarsveitir og björgunarsveitarmenn nr. 43/2003 sbr. og 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga nr 90/1996 um samstarf lögreglu og björgunarsveita sem lýtur yfirstjórn lögreglustjóra í hverju umdæmi og reglugerðar nr. 289/2003.






Leita á vefnum



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica