Fréttir

Gagnkvæm aðstoð í neyðarþjónustu

Fjórir lykilaðilar í viðbrögðum við slysum, eldsvoðum og fleiri bráðatilvikum á suðvesturhorninu hafa gert með sér samkomulag um gagnkvæma aðstoð og sameiginleg viðbrögð þar sem þjónustusvæði þeirra liggja saman.

Um er að ræða Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Hveragerðis og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Samkomulagið nær meðal annars til virkjana Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum og Hellisheiði, Þingvalla, Hellisheiðar og Þrengslavegar.

Tilgangur samningsins er að tryggja sem skjótust, öruggust og öflugust viðbrögð við slysum, bráðatilfellum, eldsvoðum, eiturefnaslysum og öðrum atburðum þar sem þörf er á sjúkraflutningum og/eða slökkviliði. Flokkist viðkomandi atburður í efsta eða næstefsta forgangsstig er gert ráð fyrir að viðbragðsaðilar séu virkjaðir beggja vegna frá og allir séu upplýstir um gang mála.

Þar sem svæði viðbragðsaðilanna liggja saman eru líkur á að annar en viðkomandi þjónustuaðili geti brugðist fyrr við. Þannig er til dæmis styttra til Þingvalla frá stöð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á Tunguhálsi en frá Selfossi og Hveragerði. Veður, færð og aðrar aðstæður geta einnig gert það að verkum að annar en viðkomandi þjónustuaðili nái fyrr á staðinn. Í mörgum tilvikum getur aukinn styrkur frá aðila utan viðkomandi starfssvæðis ráðið úrslitum um hvernig til tekst við björgunarstörf.

 

Orkuveita Reykjavíkur á mikilla hagsmuna að gæta vegna virkjananna tveggja á Hengilssvæðinu, þar sem fyrisjáanlegt er að framkvæmdir verði verulegar á næstu árum. Samningurinn var því undirritaður í viðurvist fulltrúa Orkuveitunnar og Neyðarlínunnar, 112, sem gegnir lykilhlutverki við boðun, upplýsingastreymi til viðbragðsaðila og margvíslega þjónustu í útkalli.

 

Hellisheidarvirkjun

Frá vinstri: Kristján Einarsson, Brunavörnum Árnessýslu, Snorri Baldursson, Slökkviliði Hveragerðis, Óskar Reykdalsson, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Birgir Finnsson, SHS, Hreinn Frímannsson, OR, Kristján Hoffmann, Neyðarlínunni




Leita á vefnum



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica