Fréttir

Seyðisfjörður - ferjuslys

Í tilkynningu kemur fram að það verði sprenging í gaseldavél í húsbíl á bílaþilfari og talsverður eldur kviknar sem breiðist hratt út. Farþegar fyllast skelfingu og reyna að ryðjast frá borði, margir troðast undir auk þess sem allmargir sem á bílaþilfarinu voru eru slasaðir og í mikilli hættu vegna elds og reyks.

Undanfarin misseri hefur verið unnið að gerð viðbragðsáætlunar vegna atburða af þessu tagi á Seyðisfirði eða á hafinu þar nálægt. Ætlunin er að láta reyna á virkni áætlunarinnar með þessari æfingu.                                AVD RLS                                                                                            

Að æfingunni standa almannavarnanefnd Seyðisfjarðar og viðbragðsaðilar á Austurlandi þ.á.m. slökkvilið, lögregla, björgunarsveitir, Heilbrigðisstofnun Austurlands, hafnaryfirvöld og Rauða kross deildir auk viðbragðsaðila af höfuðborgarsvæðinu.

Um framkvæmd og undirbúning auk heimamanna sjá Landhelgisgæsla Íslands og Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans ásamt ráðgjafahóp, sem í eru fulltrúar frá; Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, Rauða krossi Íslands, Neyðarlínunni, Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra, Landlæknisembættinu, Landsspítala háskóla- sjúkrahúsi, Biskupsstofu, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Siglingastofnun, Rannsóknarnefnd sjóslysa, Flugmálastjórn og Brunamálastofnun.



 

 

Text Size Controls