Fréttir
Sjúkraflutningar Akureyri - sjúkraflug
Tryggingastofnun samdi einnig við Mýflug um sjúkraflug á norðursvæði næstu fimm árin. Svæði sjúkraflug
s Mýflugs nær nú yfir landið allt utan suðurland og Vestmannaeyja.
Sjúkraflutningamenn frá S.A. fara sem hluti af áhöfn, í öll skipulögð sjúkraflug.
Svæði heilsugæslustöðvar Akureyrarbæjar er, auk Akureyrar, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Eyjarfjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur og hluti Þingeyjarsýslu sem áður hét Hálshreppur.
Slökkviliðið annast sjúkraflutninga á svæði Heilsugæslustöðvar Akureyrar, skv. fyrrgreindum samningi við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Sjúkraflutningar eru hluti af heilbrigðisþjónustunni með það að markmiði að bjarga mannslífum, veita sjúkum og slösuðum aðhlynningu og koma þeim undir læknishendur. Til þess hefur slökkviliðið fjórar sjúkrabifreiðar sem Rauði Kross Íslands á og rekur. Bifreiðarnar eru mjög fullkomnar og vel útbúnar tækjum og búnaði. M.a. er í þeim hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki og á hverri vakt eru sjúkraflutningamenn sem hafa réttindi til að nota slíkt tæki. Allir sjúkraflutningamenn hafa grunnnámskeið sjúkraflutninga auk þess sem stöðug endurmenntun og æfingar fara fram hjá liðinu, m.a. í góðri samvinnu við lækna á F.S.A og sjúkraflutningaskólann.
Á Akureyri eru nú farnir um 1.340 sjúkraflutningar á ári. Þar af eru flutningar frá Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri út fyrir heilsugæslusvæðið um 90. Auk þess koma til um 110 útköll og aðrar hreyfingar sjúkrabifreiða og áhafna vegna sjúkraflugs. Árleg greiðsla heilbrigðs- og tryggingamálaráðuneytisins vegna samningsins er rúmar 50 milljónir króna.

