Fréttir

Slökkvilið Akureyrar 100 ára

Á fimmtudag var sviðsett umferðarslys þar sem bæjarbúum gafst kostur á að fylgjast með störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á vettvangi.

Á föstudag verður hópakstur allra tækja slökkviliðsins sem endar við Torfunesbryggju þar sem sett verður upp vatnssýning. Á laugardag verður síðan formleg afmælisathöfn kl. 13 þar sem m.a. verður opnuð ný heimasíða slökkviliðsins, www.slokkvilid.is, auk þess sem kynntur verður nýr bæklingur sem ber nafnið "Eftir áfallið". Bæklingurinn er til leiðbeiningar fyrir fólk sem lent hefur í eldsvoða eða eignatjóni. Hann er gefinn út af Slökkviliðinu í samvinnu við tryggingarfélögin sem studdu gerð hans með mjög myndarlegum hætti. Frá kl. 13.30-16 verður síðan opið hús þar sem ýmis dagskrá verður í gangi.

Nánari um dagskrána:

Föstudagur 2. desember kl. 17: Hópakstur um bæinn á öllum tækjum slökkviliðsins. Endað við Torfunef (og á planinu við Átak). Þar verður nokkurs konar "vatnssýning".

Laugardagur 3. desember kl. 13: Formlegheit vegna afmælis, m.a. opnun nýrrar heimasíðu og kynning á nýjum bækling fyrir þolendur áfalla af völdum elds eða vatns.

Laugardagur 3. desember frá kl. 13.30 til 16: Opið hús í Slökkvistöðinni við Þórsstíg. Það sem verður í boði er meðal annars:

  • Kynning á nýrri heimasíðu slökkviliðsins og nýjum bæklingi fyrir þolendur áfalla. 
  • Búnaður sýndur, björgunarbúnaður, vatnabjörgun, efnaköfun o.fl. 
  • Myndasýning á skjá (gamlar myndir).
  • Sjúkraflug , "sjúkraflutningaskólinn" með kynningu á sinni starfsemi.
  • Körfubíll (Volvo), stillt upp á plani og fólki boðið í lyftuferð
  • Klifur eða sig (björgun)
  • Reykköfun og sýning á búningum liðsins.
  • Eldvarnareftirlit , "sýnikennsla" eða fólk fær að prufa að slökkva í potti með loki eða teppi, einnig sýnikennsla á notkun slökkvitækja t.d. 2-3 svar sinnum yfir daginn.
  • Veitingar í boði nokkurra fyrirtækja á Akureyri


 

 

Text Size Controls