Fréttir
112 dagurinn 2006 á tíu ára afmæli Neyðarlínunnar
Neyðarlínan, 112, fagnar einnig tíu ára afmæli sínu um þessar mundir og efnir af því tilefni til ráðstefnu um neyðarnúmerið og þróun neyðarþjónustu föstudaginn 10. febrúar. Neyðarlínan hóf starfsemi 1. janúar 1996 og leysti 112 þá af hólmi fjöldann allan af neyðarnúmerum sem fólk þurfti að nota eftir því hvað hafði gerst og hvar viðkomandi var staddur á landinu. Nú er með einu símtali í 112 unnt að virkja á augabragði lögreglu, slökkvilið, almannavarnir, Landhelgisgæsluna, sjúkraflutningamenn, lækna, hjálparlið sjálfboðaliða og barnaverndarnefndir. Um 300 þúsund símtöl berast Neyðarlínunni á hverju ári.
Dagskrá vegna afmælis 112 og 112 dagsins verður sem hér segir:
10. febrúar – ljósmyndasýning og ráðstefna
Kl. 11.00
Ljósmyndasýningin Útkall 2005 verður opnuð í Kringlunni og stendur til 17. febrúar. Á sýningunni verður að finna úrval ljósmynda af starfi viðbragðsaðila 2005.
Kl. 13.00-17.00
Ráðstefnan 112 í tíu ár – hvað hefur breyst, hvað er framundan? haldin á Hótel Loftleiðum. Að loknu setningarávarpi Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra verður tilkynnt um val á skyndihjálparmanni Rauða krossins 2005.
Fyrirlesarar:
- Jónína Sigurðardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum.
- Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá landlæknisembættinu.
- Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS.
- Sigurgeir Guðmundsson og Kristján Maack, Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
- Jyrki Landstedt, framkvæmdastjóri 112 í Finnlandi.
11. febrúar – 112 dagurinn
Slökkvilið, lögregla, björgunarsveitir, heilbrigðisstofnanir, Rauða kross deildir, Landhelgisgæslan og fleiri standa sameiginlega að því að kynna starf sitt með ýmsum hætti um allt land, meðal annars með því að fara með lest björgunartækja um borg og bæi og bjóða almenningi í opið hús.
Við björgum deginum >>> með skemmtilegri dagskrá um allt land í dag!
Höfuðborgarsvæðið
12.00-13.00: Lest björgunartækja ekur frá Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð með blikkandi ljósum um Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Þyrla Landhelgisgæslunnar fylgir lestinni eftir úr lofti.
13.00-16.00: Opið hús, tækjasýning og kynning á starfsemi viðbragðsaðila í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2005 afhent 13.30. Varðskip, björgunarskip, þyrla og fleiri björgunartæki til sýnis við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn.
Akranes 12-16: Lest björgunartækja, sviðsett slys, opið hús hjá Rauða krossinum, Björgunarfélaginu, slökkviliði og lögreglu 14-16.
Borgarnes 14-16: Opið hús og kynning við húsnæði björgunarsveitarinnar.
Snæfellsbær 13.30-16: Lest björgunartækja og sýning í Bankastræti, opið hús hjá lögreglu.
Grundarfjörður 12-16: Lest björgunartækja, opið hús hjá björgunarsveitinni, slökkviliðinu og á heilsugæslustöðinni.
Ísafjörður 12.30-16: Lest björgunartækja, athöfn við gamla sjúkrahúsið, viðbragðsaðilar með opið hús 14-16.
Blönduós 14-16: Tækjasýning og opið hús við slökkvistöðina.
Skagafjörður 13-16: Lest björgunartækja um héraðið, opið hús hjá viðbragðsaðilum á Sauðárkróki.
Akureyri 11.30-16: Lest björgunartækja, opið hús og tækjasýning hjá Súlum 13-16.
Þórshöfn 13-15: Dagskrá við íþróttahúsið.
Vopnafjörður: Lest björgunartækja og opið á slökkvistöð.
Seyðisfjörður: Lest björgunartækja og opið hús í Herðubreið.
Fáskrúðsfjörður 11.30-16: Lest björgunartækja, opið hús að Grímseyri 7 og 9.
Stöðvarfjörður: Opið hús hjá Rauða krossinum í Gámahúsi.
Djúpivogur 13-16: Lest björgunartækja, opið hús hjá Rauða krossinum.
Höfn í Hornafirði 13-16: Opið hús hjá Rauða krossinum, Björgunarfélaginu, slökkviliðinu og lögreglunni.
Hvolsvöllur 13-15: Opið hús hjá Rauða krossinum.
Vestmannaeyjar 13-16: Lest björgunartækja, opið hús á lögreglustöðinni og hjá Björgunarfélaginu.

