Fréttir
Ráðstefna Blátt Áfram
Ráðstefna á vegum Blátt áfram verður haldin 4 maí 2006 í Kennaraháskólanum frá kl: 9 – 17.
Aðalfyrirlesari er Robert E. Longo, MRC, LPC, sérfræðingur frá Bandaríkjunum sem hefur unnið í málaflokknum síðastliðin 25 ár.
Aðrir fyrirlesarar eru:
Þorbjörg Sveindóttir verkefnastjóri á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafanemi á fjórða ári í HÍ.
Jón Friðrik Sigurðsson forstöðusálfræðingur á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu opnar ráðstefnuna.
Fundarstjóri er Guðrún Ebba Ólafsdóttir borgarfulltrúi.
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar og Robert E. Longo er að finna á www.blattafram.is
Samstarfsaðili: Barnaverndarstofa
Yfirstígum óttann .... stefnan tekin á forvarnir, fræðslu og heilbrigði!
Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem samfélagið getur farið til að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Hluti af forvörnum er að takast á við fordóma gagnvart fólki sem hefur lifað af ofbeldi. Fordómar eru stærsti hluti vandans. Einnig þurfum við að taka ábyrgð á veiku fólki (gerendum) og koma með skýr skilaboð um hvernig við ætlum að stöðva þennan vítahring sem kynferðislegt ofbeldi er.
Kynferðisafbrotamenn og konur þurfa hjálp, hvert geta þau leitað? Samfélag byggt upp af brotnu fólki er brotið samfélag. Fólk sem tekst á við afleiðingar ofbeldis er sterkt og hugrakkt fólk sem sýnir að hægt er að horfast í augu við og yfirstíga óttann.
Umfjöllunarefni Roberts E. Longos:
- Að fyrirbyggja kynferðislega misnotkun á börnum: Farið yfir mismunandi nálgun og notkun forvarna og hvernig þær virka. Þróun fyrirbyggjandi aðgerða í gegnum tíðina.
- Börn sem hafa verið misnotuð kynferðislega: Áhrif og bataferli. Skömm, þol, lífsvilji og meðferð.
- Ungmenni sem gera sig sek um kynferðislega misnotkun. Tíðni, tafarlaus íhlutun og meðferð.
- Fullorðnir sem gera sig seka um kynferðislega misnotkun. Tíðni, íhlutun og meðferð.
Þorbjörg Sveindóttir - Hvenær verður kynferðisleg hegðun barna áhyggjuefni og viðbrögð við frásögnum barna og ungmenna um kynferðislega misnotkun.
Kristín Berta Guðnadóttir - Áhrif fjölmiðlaumfjöllunar um kynferðislega misnotkun á málafjölda í Barnahúsi.
Jón Friðrik Sigurðsson - Ungmenni sem beita aðra kynferðislegri misnotkun, staðan á Íslandi og úrræði.
Ráðstefnan er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af mörkum við að breyta íslensku samfélagi.
Skráning á www.blattafram.is

