Fréttir

Jákvæðni í garð 112 með því mesta sem þekkist

Gallup - gott mál

IMG Gallup

Landsmenn eru jákvæðari í garð 112 en til fyrirtækja og þjónustuaðila almennt samkvæmt rannsókn sem IMG Gallup gerði nýverið. Jákvæðni í garð neyðarnúmersins mældist 4,7 á kvarðanum 1-5 en hæsta gildi í ímyndarmælingum IMG Gallup á síðasta ári reyndist 4,5 og meðaltalið var 3,9. Rannsóknin leiðir jafnframt í ljós að æ fleiri landsmönnum er ljóst hvert neyðarnúmerið er á Íslandi. Í samsvarandi könnun í desember 2001 þekktu 98% neyðarnúmerið en að þessu sinni svöruðu 99,4% spurningunni rétt.

Spurt var: Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ertu gagnvart Neyðarlínunni – 112?

Niðurstaðan varð sem hér segir:

  • Mjög jákvæð(ur)                        75,8% 
  • Frekar jákvæð(ur)                     18,4%
  • Bæði og – í meðallagi                4,8%
  • Frekar neikvæð(ur)                      0,4%
  • Mjög neikvæð(ur)                         0,6% 

 

 

Rannsókn IMG Gallup var gerð á tímabilinu 22. mars til 6. apríl síðastliðinn. Úrtakið var 1.350 manns af öllu landinu á aldrinum 16-75 ára. Greint var eftir kyni, aldri, búsetu, tekjum, menntun og starfi en ekki greindist verulegur munur á viðhorfi fólks til 112 eftir þessum breytum. Þó reyndist marktækur munur á viðhorfinu eftir aldri þannig að 35 ára og eldri voru jákvæðari en þeir yngri.

 

Rannsóknin leiðir einnig í ljós að fleiri en áður segjast hafa þurft að hringja í 112. Þeir voru 26,2% 2001, 29,2% í rannsókn sem gerð var í október-nóvember 2004 en 31,3% nú. Fólk á aldrinum 25-34 svaraði spurningunni oftast játandi (41%) en aldurshópurinn 55-75 ára langsjaldnast (24%).

 

Af þeim sem kváðust hafa þurft að hringja í 112 voru 85,1% ánægðir með úrlausn erindisins en 5,6% bæði og eða í meðallagi. 9,2% sögðust hins vegar vera frekar eða mjög óánægðir.



 

 

Text Size Controls