Fréttir
Boot Camp áheitahlaup 8 júlí 2006 - 100km hlaup frá Hellu til Reykjavíkur
Blátt áfram > rjúfum þögnina!
Arnaldur Birgir Konráðsson, Evert Víglundsson og Róbert Traustason safna áheitum til stuðnings Blátt Áfram með því að hlaupa 100 km hver.
Félagarnir munu hefja hlaupið á miðnætti aðfaranótt laugardagsins 8 júlí.
Áætlaður tími hlaupsins er undir 18 klst.
"Ástæða þess að við völdum Blátt Áfram er sú að málefninu þarf nauðsynlega að tryggja umræðu um ókomna tíð. Málefnið hefur hreinlega verið of lengi í svefni og því komin tími á að opna umræðuna. Þetta er málefni sem snertir alla þjóðina." segir Róbert Traustason.
Fyrir ári síðan hjóluðu þeir félagar yfir hálendið, eða rúma 410 kílómetra. Þar söfnuðust um 1 milljón króna fyrir unga stúlku sem var á leið til Svíþjóðar í beinmergskipti.
Þátttakendur kaupa bol á 1500 kr og safna áheitum fyrir sig eða þá sem hlaupa í bolnum.
Blátt áfram er að undirbúa auglýsingarherferð í fjölmiðla með haustinu og mun ágóðinn af þessu hlaupi vera nýttur í þá herferð.
Actavis er bakhjarl hlaupsins. Bolirnir verða því vel merktir Actavis og Blátt áfram. Á hlaupaleiðinni verðum við með nokkra staði þar sem fólk kemur saman, til að hvetja strákana áfram og jafnvel hlaupa með þeim. Á Selfoss, Litlu Kaffistofunni, Húsgagnahöllinni og svo loks við Reykjavíkurhöfn þar sem hlaupið endar.
Allstaðar á leiðinni getur fólk slegist í hópinn og hlaupið með. Á öllum þessum stöðum verður hressing fyrir áhorfendur og við munum sleppa upp blöðrum bláum og appelsínugulum, merktum Actavis og Blátt Áfram. Boðið verður upp á appelsínur, bláan powerade, orange djús og vatn.
Við endapunktinn við Reykjavíkurhöfn verður tekið á móti hlaupurum með hljómsveitum og þar verða fjölmiðlar og aðstandendur samankomnir.
Stefnt er á að vera þar um kl: 14:00.
Fyrir þá sem vilja styðja við okkur en geta ekki tekið þátt í hlaupinu geta hringt í síma 907 2000 og styrkt Blátt áfram um 1000 kr. Nánari upplýsingar og skráningar er að finna á heimasíðu Blátt áfram eða Boot Camp. www.blattafram.is www.bootcamp.is
Rjúfum þögnina!

