Fréttir
Nýútskrifaðir neyðarverðir - merkur áfangi
Starf neyðarvarða hefur því víðtækt verksvið sem þarfnast sífellt skilvirkari og ítarlegri viðbragða, auknar kröfur almennings og viðbragðsaðila til neyðarvarða krefjast aukinnar þekkingar og þjálfunar.
Í ársbyrjun 2006 fóru tveir starfsmenn Neyðarlínunnar til Bandaríkjanna og settust á skólabekk hjá APCO - 911 og öfluðu sér m.a. kennsluréttinda til fullnaðarútskriftar á nemendum hér Íslandi.
Þann 31.október sl. voru útskrifaðir fyrstu þrír neyðarverðirnir frá Neyðarlínunni 112 eftir próf, með ágætis einkun, sem fullgildir neyðarverðir með þekkingarlega viðurkenningu frá APCO.
Þeir nemendur sem luku nú þjálfun hófu störf í byrjun apríl sl.
Tilgangur og markmið þjálfunar er að uppfylla þá gæðastefnu Neyðarlínunnar, að þjónusta sé í samræmi við væntingar viðskiptavina.

Kristján Hoffmann Björn Finnbogas Guðjón Gunnars Hildur Guðmunds Dagný Halldórsdóttir
Gæðastjóri Neyðarvörður Neyðarvörður Neyðarvörður Aðst.framkv.stj.
Þjálfunarferill náði m.a. til
- Þjónustuskyldu
- Trúnaðarskyldu
- Siðfræði
- Stjórnskipulags
- Fjarskipta
- Samskipta
- Þjónustu
- Stefnu
- Reglna og reglugerða
- Símtalstækni
- Tæknimála
- Sálfræði
Neyðarverðir voru m.a í þjálfun hjá:
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, lögreglu, Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra, Landspítala – Háskólasjúkrahúsi og fleirum.
Samstarfsfólk nýútskrifaðra neyðarvarða og yfirstjórn Neyðarlínunnar óskar þeim til hamingju með þennan áfanga sem vissulega markar spor í sögu neyðarsímsvörunar á Íslandi

