2010
Við treystum á þína hjálp
112 dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11, febrúar næstkomandi. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla.
Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast kemur venjulegur borgari fyrst að, tilkynnir um atburðinn og veitir fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun.
Þess vegna er mikilvægt að sem flestir kunni skyndihjálp og treysti sér til að veita hana þegar á reynir.
Margt verður gert til að vekja athygli á deginum og efni hans:
- Gefið verður út sérstakt 112 blað sem dreift verður með Fréttablaðinu 11. febrúar.
- Kynntar verða niðurstöður Gallup-könnunar um skyndihjálparþekkingu landsmanna.
- Fjöldi grunnskólabarna fær fræðslu um skyndihjálp og slysavarnir í tengslum við daginn.
- Viðbragðsaðilar kynna skyndihjálp, slysavarnir og fleira, meðal annars í Smáralind laugardaginn 13. febrúar.
- Móttaka verður í Skógarhlíðinni þar sem viðurkenningar verða veittar fyrir skyndihjálp og verðlaun veitt í Eldvarnagetrauninni.

