Gátlisti

Ert þú í öruggum höndum?

Gátlisti fyrir krakka á öllum aldri

 

Krakkar geta haft áhrif á sitt eigið öryggi og annarra. Þeir geta passað upp á margt sjálfir og þeir geta líka hvatt foreldra sína og kennara til að laga ýmislegt ef á þarf að halda.

 

Hér eru nokkur atriði sem við biðjum þig að skoða:

 

Þekkja allir á heimilinu neyðarnúmerið 112? Nei
Hefur farið fram rýmingaræfing í skólanum þínum? Nei
Kunna pabbi, mamma, afi og amma skyndihjálp? Nei
Notarðu alltaf hjálm þegar þú hjólar? Nei
Eru nógu margir virkir reykskynjarar heima hjá þér? Nei
Er slökkvitæki heima hjá þér? Nei
Notar öll fjölskyldan bílbelti, alltaf? Nei
Er skyndihjálp kennd í skólanum þínum? Nei
Er unnið gegn einelti í skólanum þínum? Nei
Ferðu nógu varlega í samskiptum við aðra á netinu? Nei
Þekkirðu símanúmer Hjálparsíma Rauða krossins? Nei

 

Ef þú hefur svarað öllum spurningunum játandi ertu bara í býsna góðum málum. Hafirðu svarað einhverjum spurningum neitandi hvetjum við þig til þess að ræða þær við foreldra þína eða kennara.

 

 

Text Size Controls