Skyndihjálparmaður Rauða krossins 2010
112 dagurinn í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð 2011
Rauði kross Íslands hefur valið Ólaf Guðnason sem Skyndihjálparmann ársins 2010 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar hann lenti í bílslysi fjarri byggð í fyrrasumar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra afhenti Ólafi viðurkenningu Rauða krossins í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð á 112-daginn, 11. febrúar.

Ólafur bjargaði lífi sonar síns, Ólafs Diðriks Ólafssonar, með því að stöðva miklar blæðingar á höfði og handlegg hans þegar bíll þeirra valt á Háreksstaðaleið á Jökuldalsheiði. Ólafur hefur farið á mörg skyndihjálparnámskeið hjá Slysavarnaskólanum og kom kunnátta hans og þekking þaðan sér afar vel á þessari örlagastundu.

Þetta er í tíunda sinn sem Rauði krossinn velur Skyndihjálparmann ársins. Viðurkenninguna hlýtur sá einstaklingur sem hefur á árinu veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt. Sérstök dómnefnd er kölluð til að skera úr um hver hlýtur viðurkenninguna ár hvert en hana skipa fulltrúar frá Rauða krossi Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, Neyðarlínunni, Landspítala háskólasjúkrahúsi, lögreglunni, og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Sex aðrir einstaklingar hljóta einnig viðurkenningar hjá deildum Rauða krossins fyrir að hafa beitt skyndihjálp og bjargað lífi á eftirtektarverðan hátt. Þeir eru Ágúst Þorbjörnsson fyrir endurlífgun á félaga sínum sem starfar í næsta húsi við vélsmiðju hans á Hvammstanga; Sæþór Þorbergsson fyrir endurlífgun á gesti sem fór í hjartastopp í líkamsræktarstöð á Stykkishólmi; Erna Björg Gylfadóttir fyrir endurlífgun á systur sinni ásamt vinnufélögum í HB Granda á Akranesi; Borghildur Sverrisdóttir í Hafnarfirði fyrir að losa aðskotahlut úr hálsi á föður síns í sumarbústaðaferð fjölskyldunnar; Alfreð Gústaf Maríusson fyrir að endurlífga samstarfsmann sinn í grunnskóla í Hafnarfirði; og Benedikt Gröndal, einnig í Hafnarfirði, fyrir að losa aðskotahlut úr hálsi sonar síns.

