Námskeið í skyndihjálp og sálrænum stuðningi
Námskeið fyrir fyrirtæki
Skyndihjálparnámskeið Rauða krossins eru mismunandi og sniðin að þörfum einstaklinga, hópa og fyrirtækja. Fyrirtæki sem óska eftir frekari upplýsingar um námskeið geta senda fyrirspurnir á gulla@redcross.is eða hringt á landsskrifstofu félagsins í síma 570 4000.
Námskeið fyrir almenning
Víða um landið halda deildir Rauða krossins skyndihjálparnámskeið fyrir almenning. Námskeiðin eru jafnan auglýst á heimasíðunni redcross.is undir liðnum Á DÖFINNI. Almenningur getur haft samband við Rauða kross deildina í sínu sveitarfélagi eða landsskrifstofu Rauða krossins, Efstaleiti 9, 103 Rvk, s. 570 4000 eða sent fyrirspurn á netfangið central@redcross.is
Skyndihjálparnmámskeið framundan hjá RKÍ
- Hafnarfjarðardeild Rauða kross Íslands heldur námskeið í almennri skyndihjálp laugardaginn 20. mars kl. 10-14 í húsnæði deildarinnar að Strandgötu 24, 2 hæð (gengið inn frá Fjarðargötu)
- Kjósarsýsludeild verður með Skyndihjálp 4 stundir þann 24. mars, kl. 17:30-21:30. Kennari er Vigdís B. Agnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Námskeiðið fer fram í Þverholti 7 og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráningargjald er 1000kr sem er óafturkræfanlegt. Sjálfboðaliðar með gildan sjálfboðaliðasamning þurfa ekki að greiða skráningargjald.
- Reykjavíkurdeild RKÍ verður með skyndihjálparnámskeið daganna 19., 20. og 21. apríl 2010 frá kl: 18-22 í húsnæði Reykjavíkurdeildar Laugavegi 120, 5. hæð.

