Meira samstarf í öryggis- og neyðarþjónustu
112 dagurinn 2011
Þegar undirbúningshópur vegna 112-dagsins ákvað að efna til hugarflugsfundar aðila í öryggis- og neyðarþjónustu renndi hann blint í sjóinn með það hvort áhugi væri fyrir slíkum fundi. Enda hafði fundur af þessu tagi ekki áður verið haldinn með víðtækri þátttöku þeirra sem veita þessa mikilvægu þjónustu. Skemmst er frá því að segja að starfsmenn og sjálfboðaliðar víðs vegar af landinu gripu fegins hendi það tækifæri sem þarna gafst til að setjast niður með öðrum og ræða gildi, styrkleika, veikleika og framtíðarsýn, þvert á stofnanir, félög og hlutverk.
Fundurinn var haldinn 10. febrúar síðastliðinn undir yfirskriftinni Samstarf í almannaþágu. Um eitt hundrað þátttakendur komu úr ýmsum áttum, bæði starfsfólk og sjálfboðaliðar, margir langt að komnir. Þeir eiga það sameiginlega markmið að tryggja almenningi í landinu eins vandaða og áreiðanlega þjónustu og unnt er þegar á bjátar. Skipulag fundarins miðaði að því að tryggja virka þátttöku allra fundarmanna.
Sterkari saman
Óhætt er að segja að mikill samhugur hafi einkennt bæði fundinn sjálfan og niðurstöður hans. Meginskilaboð fundarins voru skýr; við erum sterkari þegar við vinnum saman. Samvinna, samhæfing og samræming eru rauði þráðurinn í öllum meginniðurstöðum fundarins:
- Samvinna er það gildi sem oftast var nefnt en þar á eftir fagmennska, þekking, traust og virðing.
- Styrkleika okkar er einkum að finna þar sem við vinnum saman og samræmum, til dæmis í sameiginlegu neyðarnúmeri, sameiginlegri björgunarmiðstöð og samhæfingarstöð, sameiginlegu fjarskiptakerfi.
- Veikleika er einkum að finna þar sem skortir á frekari samvinnu og samhæfingu.
- Í framtíðarsýn fundarins kemur mjög skýrt fram að stefna skuli að enn frekari samvinnu, samhæfingu og samræmingu.
- Í athugasemdum á matsblöðum sem þátttakendur fylltu út í lok fundarins kemur fram mjög eindregin ósk um að kalla oftar til funda af þessu tagi þar sem aðilar í öryggis- og neyðarþjónustu geta rætt saman, þvert á stofnanir, félög og hlutverk. Tölum meira saman, sögðu fundarmenn.
Margvísleg verkefni
Ákall um samvinnu, samhæfingu og samræmingu lýtur að mörgum þáttum í starfsumhverfinu. Kallað er eftir enn frekara samstarfi í stjórnun, óskað er eftir að sameiginlegur gagnagrunnur bjarga og ferilvöktun nái til allra, að löggjöf og stjórnsýsla verði samræmd, að samstarf 112 og lögreglu verði eflt.
Fram koma tillögur um afmörkuð verkefni sem aðilar í öryggis- og neyðarþjónustu gætu sameinast um, svo sem um sameiginlegan björgunarskóla og sameiginlegt vefsvæði. Þessi verkefni eru brýn að mati fundarmanna vegna þess að þeir telja að þau geti orðið til þess að auka og bæta þjónustu við almenning, en það er hið endanlega og sameiginlega markmið allra sem þarna komu saman.
Hér gefst ekki ráðrúm til að gera grein fyrir niðurstöðunum í smáatriðum en þær er að finna hér á 112.is og hvetjum við alla hlutaðeigandi til að kynna sér þær.
Þjónar tilgangi sínum
Markmiðið með þjóðfundinum var að niðurstöður hans gætu nýst meðal annars til stefnumótunar, hugsanlegra skipulagsbreytinga og aukins skilnings þátttakenda á hlutverkum og starfsemi innan öryggis- og neyðarþjónustu og þannig leitt til betri og áreiðanlegri þjónustu við almenning.
Enginn vafi leikur á að fundurinn þjónaði tilgangi sínum og að hann getur nýst aðilum meðal annars til stefnumótunar og skipulagsbreytinga, bæði með almennum hætti og sértækum. Það er nú undir ýmsum komið hvernig niðurstöðurnar nýtast; þátttakendum sjálfum, viðeigandi stofnunum og félagasamtökum og ekki síst stjórnvöldum. Ástæða er til að hvetja þessa aðila til að skoða niðurstöðurnar vel og meðtaka skilaboðin.
Við viljum að endingu þakka öllum sem tóku þátt í undirbúningi fundarins og þeim sem lögðu fram krafta sína á fundinum af miklum áhuga og vinnugleði. Einnig þeim sem tóku þátt í 112-deginum með margvíslegum hætti. Í okkar huga er 112-dagurinn einmitt vettvangur fyrir samvinnu og samhug allra þeirra sem starfa að neyðar- og öryggisþjónustu í þágu almennings. Hann var því afar viðeigandi vettvangur fyrir svo upplífgandi og gefandi fund.

