Beint í leiðarkerfi vefsins.
Könnunin fór fram í mars og voru niðurstöður hennar jákvæðar eins og áður. Fjórar megin spurningar voru lagðar fyrir þátttakendur auk spurninga til frekari greiningar. Könnunin sýnir að almenningur er jákvæðari í garð 112 en almennt tíðkast hjá opinberum stofnunum og félagasamtökum.
Lesa meira
Hugarflugsfundur samstarfsaðila í öryggis- og neyðarþjónustu var haldinn 10. febrúar síðastliðinn undir yfirskriftinni Samstarf í almannaþágu. Um eitt hundrað þátttakendur komu úr ýmsum áttum, bæði starfsfólk og sjálfboðaliðar, margir langt að komnir. Þeir eiga það sameiginlega markmið að tryggja almenningi í landinu eins vandaða og áreiðanlega þjónustu og unnt er þegar á bjátar.
Lesa meiraÁrmann Gestsson aðstoðarvarðstjóri 112 er neyðarvörður ársins 2010. Valið var kunngjört á 112-daginn og afhenti Dagný Halldórsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Ármanni viðurkenningu við athöfn í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Ármann er þriðji neyðarvörðurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu og er afhending hennar orðin meðal fastra liða í dagskrá sem jafnan er efnt til í Björgunarmiðstöðinni á 112-daginn
Lesa meiraLandssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) efndi til Eldvarnaátaks í nóvember 2010 í samstarfi við TM, Brunamálastofnun, 112, slökkviliðin, Eldvarnabandalagið og fleiri. Slökkviliðsmenn heimsóttu grunnskóla landsins, fræddu átta ára börn um eldvarnir og öryggismál og gáfu þeim kost á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2010. Nöfn 32 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Börnin fengu vegleg verðlaun að vanda og voru þau afhent víða um land á 112-daginn, 11. febrúar. Á höfuðborgarsvæðinu voru verðlaunin afhent við dagskrá í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð.
Lesa meiraRauði kross Íslands hefur valið Ólaf Guðnason sem Skyndihjálparmann ársins 2010 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar hann lenti í bílslysi fjarri byggð í fyrrasumar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra afhenti Ólafi viðurkenningu Rauða krossins í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð á 112-daginn, 11. febrúar.
Lesa meiraFjölmennur þjóðfundur um neyðar- og öryggisþjónustu, sem haldinn var í tilefni af 112-deginum, kallar eindregið eftir aukinni samvinnu og samhæfingu aðila. Þetta kom skýrt fram þegar frumniðurstöður fundarins voru kynntar við dagskrá í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð á 112-daginn, 11. febrúar.
Lesa meira
Nú stendur yfir fundur samstarfsaðila um almenna öryggis- og neyðarþjónustu í landinu í tilefni af 112-deginum sem er á morgun
Lesa meira
Um eitt hundrað starfsmenn og sjálfboðaliðar í öryggis- og neyðarþjónustu af öllu landinu koma saman til fundar í tilefni af 112-deginum sem að venju er haldinn 11. febrúar. Markmið hans er að ræða framtíðarskipan öryggis- og neyðarþjónustu og hvernig þjónustan verði best sniðin að þörfum almennings. Fundurinn verður með þjóðfundarsniði til að tryggja virka þátttöku allra fundarmanna. Fundur af þessu tagi hefur aldrei áður verið haldinn í tengslum við þessa mikilvægu þjónustu.
Lesa meiraDagana 27., 29. september og 1. október hélt Neyðarlínan hugarflugsfundi með öllu starfsfólki fyrir tækisins og fulltrúm úr hópi helstu samstarfsaðila 112. Á fundunum veltu þátttakendur fyrir sér mögulegri þróun þjónustu 112 við almenning og viðbragðsaðila og hvernig upplýsingakerfi 112 þurfi að styðja við þá þróun í framtíðinni.
Lesa meira
Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að bóluefni gegn inflúensu A (H1N1) berist til landsins um næstu mánaðamót og að í byrjun október verði unnt að byrja að bólusetja landsmenn gegn veikinni. Stjórnvöld hafa keypt 300.000 skammta, sem koma hingað í fjórum sendingum, hinni síðustu um áramót.
Lesa meira
Í morgun áttu sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fund með fulltrúum stofnana sem gegna lykilhlutverki í viðbúnaðaráætlun vegna inflúensufaraldurs. Á fundinum voru lögð fram drög að framkvæmd sóttvarna og viðbúnaði í samræmi við viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu. Niðurstaða fundarins var sú að allir aðilar eru vel undirbúnir í samræmi við áætlanir sem fyrir liggja.
Lesa meira
112 Dagurinn hefur verið haldinn árlega síðan 2005 og ber hann ávallt upp á 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi hinna fjölmörgu neyðarþjónustuaðila sem tengjast því, efla vitund almennings um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig þjónustan nýtist almenningi.
Lesa meira
21. janúar tók 112 á móti Dennis Debbaudt, sérfræðingi í þjálfun viðbragðsaðila í framkomu við einhverfa einstaklinga.
Lesa meiraÞað kemur fyrir að vafi komi upp í huga þess sem þarf aðstoðar við... "á ég að hringja í Neyðalínuna"... "mín neyð er kannski ekki neyð" .... "ég vil ekki trufla" ..... "einhver annar getur verið í neyð á meðan ég hringi".... "ég bíð til morguns"... "ég harka þetta af mér"..... og margar fleiri tilvitnanir væri hægt að nefna.
Svarið við þessum tilvitnunum og fleiri er og verður alltaf : hringdu þótt þú sért í vafa, við erum þér til aðstoðar.
Markmið könnunarinnar var að kanna vitund og notkun á Neyðarlínunni og skoða þróun miðað við fyrri ár. Framkvæmdatími var >13. mars - 24. mars 2008. Þetta var símakönnun og var 1350 manna slembiúrtak úr þjóðskrá tekið, fólk á aldrinum 16-75 ára af öllu landinu
Lesa meiraNeyð er frábrugðin daglegu lífi, þar sem m.a. heilsu, mannslífum eða eignum er ógnað. Undir slíkum kringumstæðum ber að hringja í Neyðarlínuna 112.
Lesa meira
Neyðarlínan afhendir Kristjáni formanni Dýra bílinn
Lesa meira
LSS efndi til Eldvarnaátaks í nóvember 2007 í samstarfi við TM, Brunamálastofnun, SHS og önnur slökkvilið, 112 og fleiri aðila. Slökkviliðsmenn heimsóttu nær alla grunnskóla landsins, fræddu átta ára börn um eldvarnir og öryggismál og gáfu þeim kost á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2007.
Lesa meira
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, opnaði sýninguna, en sýningin er haldin í tilefni af 112-deginum og stendur til 18. febrúar.
Lesa meira
Erindi sem geta komið til 112 eru margss
konar
og ná m.a. til aðstoðarbeiðna vegna slysa, dauðsfalla, barnaverndarmála, veikinda, fæðinga, bilunar í veitukerfum, umhverfisslysa, bruna, vatnstjóna, árása, náttúruhamfara og sjóslysa svo eitthvað sé nefnt.
Lesa meira
neyðarverði með SMS-skilaboðum. Með því aukast verulega líkur á að unnt verði að koma viðkomandi til aðstoðar á neyðarstundu..
Lesa meira
Í gær var undirritað samkomulag milli Landmælinga Íslands og

Björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð um aukna notkun á
landupplýsingum við björgunarstörf.
Akureyrarbær og heilbrigðisráðuneytið undirrituðu þann 19. nóvember, samning um sjúkraflutninga á svæði heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Gildistími samningsins er til ársloka 2009 og mun slökkvilið Akureyrar (S.A.) sjá um sjúkraflutningana.
Lesa meira
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hófst laugardaginn 19. nóvember með útgáfu forvarnablaðsins Slökkviliðsmaðurinn. Blaðinu er dreift í 70 þúsund eintökum um land allt en í því eru meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um eldvarnir heimilanna.
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hófst laugardaginn 19. nóvember með útgáfu forvarnablaðsins Slökkviliðsmaðurinn. Blaðinu er dreift í 70 þúsund eintökum um land allt en í því eru meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um eldvarnir heimilanna.
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hófst laugardaginn 19. nóvember með útgáfu forvarnablaðsins Slökkviliðsmaðurinn. Blaðinu er dreift í 70 þúsund eintökum um land allt en í því eru meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um eldvarnir heimilanna.
Æfing á viðbrögðum við alvarlegu slysi um borð í ferju verður haldin
á laugardag á Seyðisfirði. Líkt verður eftir því að ferjan Sky Princess sé lögst að bryggju og afferming að hefjast.
En það er nú bara í dag og er frekar sjaldgæft að raðist þannig á vaktir, en sex konur eru starfandi sem neyðarverðir af tuttugu af velþjálfuðum og samhentum neyðarvörðum sem sinna neyðarþjónustu við landsmenn.
Lesa meira
Undirritaður var í dag samningur á milli fjarskiptamiðstöðvar .jpg)
Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar 112. Samningurinn tekur m.a. til
verklags á milli starfsstöðva, samræmdri greiningu mála og viðbragðs.
Verklagsreglur þessar eru settar um hlutverk og samskipti Neyðarlínunnar við fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra.
Lesa meiraMeð bréfi 26. september sl. óskaði lögreglustjórinn í Rangárvallasýslu eftir því að
almannavarnaæfingunni Bergrisinn 2005, sem átti að halda 21. til 23. október nk., yrði frestað svo að lengri tími gæfist til að undirbúa viðbragðsaðila og íbúa í Rangárvallasýslu en mikil þátttaka heimamanna er mikilvæg fyrir góðan árangur æfingarinnar.
Lögreglan í Reykjavík opnar nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjódd í dag, miðvikudaginn 28.september, en á sama tíma verður lögreglustöðinni í Völvufelli lokað.
Neyðarlínan 112 óskar lögreglumönnum innilega til hamingju með nýja starfsstöð.
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans
stendur þann 21.- 23. október fyrir stórri allsherjaræfingu. Æfingin hefur hlotið nafnið Bergrisinn og tekur til hættu vegna hugsanlegra eldsumbrota undir Mýrdals- og Eyjafjallajöklum.
Grein frá Ítalíu um íslensku Neyðarlínuna og fjallað um t.d. að skráðar eru leiðbeiningar í símaskrá og hvernig umhverfi Íslendingar eru með tengt
neyðaratburðum. Til ánægju fylgir greinin hér beint og þá á Ítölsku. >>>Unico già attivo anche in Islanda (Agosto 2005)
L'Islanda, l'isola all'estremità occidentale dell'Europa del nord, paese che come la Norvegia non aderisce all'Europa Unita, ma che con essa ha accordi come l'adesione al trattato di Shengen, ha attivato il Numero Unico di Emergenza 112 al quale ci si può rivolgere per Vigili del Fuoco, Soccorso Sanitario, Polizia e Protezione Civile.
Lesa meira
Slagkraftur viðbragðsaðila, þ.e. björgunarfólks á höfuðborgarsvæðinu, getur verið býsna mikill í stóráföllum að mati Jóns Viðars Matthíassonar slökkviliðsstjóra á höfuðborgarsvæðinu (SHS), en það þarf að fá því svarað hvað viðbragðsaðilarnir geta nákvæmlega ráðið við stór áföll og hvort til séu viðbragðsáætlanir til að mæta þeim. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu sem lokið var við í febrúar á þessu ári.
| Samhæfingarstöðin (SST) - Nýtt nafn |
|
Í samráðshópnum eru fulltrúar frá Ríkislögreglustjóra, Neyðarlínu, Landhelgisgæslu, Flugmálastjórn, Siglingastofnun, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þessir aðilar undirrituðu samstarfssamning þann 7. apríl 2003 Eftir sem áður eru verkefni Samhæfingarstöðvarinnar þau sömu, þ.e. samhæfing aðgerða í almannavarnaástandi, samhæfing leitar og björgunar á landi og á sjó auk leita að týndu loftfari. Þá eru uppi hugmyndir um að Aðgerðastjórn almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins fái aðgang að Samhæfingarstöðinni í aðgerðum. |
Á hverjum sólarhring, alla daga ársins eru 800 til 1000 símtöl sem berast í gegnum neyðarnúmerið 112. Eins og gefur að skilja eru erindin jafn mörg og innhringingar. Í þessum fjölda eru flest símtöl "alvöruerindi" en svo eru einstaklingar sem gera sér leik að því að hringja inn erindisleysu og/eða gefa rangar upplýsingar um atburði sem eru tilhæfulausir. Um allt land eru símasjálfsalar sem ókeypis er að hringja úr í 112. Úr sumum þeirra, bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan þess er mikil ánauð af erindislausum símtölum, yfirleitt í óvitaskap barna og unglinga. Símasjálfsalar sumra skóla landsins standa þarna uppúr yfir vetrarmánuðina. Þó að umrædd símtöl séu og geti skapað leiðindaálag eru önnur mun alvarlegri.
Skrifað hefur verið undir samning um að Slökkvilið Akureyrar annist þjónustuborð fyrir Neyðarlínuna 112 og er þjónustan þar með efld til muna á landsvísu. Bæjarstjóri, Kristján Þór Júlíusson, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Akureyrarbæjar en Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, fyrir hennar hönd. Undirskrift samningsins fór fram að viðstöddum yfirlögregluþjóni og öðrum lögreglumönnum í húsakynnum lögreglunnar við Þórunnarstræti þar sem þjónustuborðin eru til húsa.
Fréttatilkynning vegna 112 dagsins, föstudagsins 11. febrúar 11.2 2005
Þegar á bjátar höfum við aðgang að geysilega öflugu neti viðbragðsaðila og hjálparliðs í gegnum eitt samræmt neyðarnúmer fyrir landið og miðin - 112. Með einu símtali í 112 er unnt að virkja á augabragði lögreglu, slökkvilið, almannavarnir, Landhelgisgæsluna, sjúkraflutningamenn, lækna, hjálparlið sjálfboðaliða og barnaverndarnefndir. Yfir 300 þúsund erindi bárust 112 á síðasta ári.
Árangur af starfi þessara aðila byggir á hraða, samvinnu og skipulagi.
Lesa meira
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti ræðuna, sem hér fylgir, á málþingi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands um áfallahjálp, sem haldið var í Norræna húsinu 14. desember. Ræðuna nefnir hann Rannsóknir í þágu þjóðaröryggis og vekur þar máls á því, að Íslendingar hafi viðurkennt nauðsyn eigin aðgerða vegna náttúruhamfara en hafi minni skilning á nauðsyn aðgerða vegna hamfara af mannavöldum. upphafi vil ég fagna því, að til þessa málþings um áfallastjórnun sé boðað. Ég viðurkenni, að ég gerði mér ekki grein fyrir því, að rannsóknir af þeim toga, sem hér verða kynntar, væru stundaðar innan vébanda Háskóla Íslands og í samvinnu við CRISMART rannsóknasetrið í Stokkhólmi undir handarjaðri varnarmálaháskóla Svía.
Ég þarf væntanlega ekki að skýra fyrir þeim, sem hér eru staddir, að um langt árabil hef ég bent á nauðsyn þess, að við Íslendingar ræddum öryggismál okkar af raunsæi í stað óskhyggju. Áfallastjórnun snýst um forvarnir og rétt viðbrögð við hættuástandi og að stjórnvöld ráði yfir skipulagi, mannafla og tækjum til slíkra viðbragða. Áfallastjórnun er þannig hluti öryggismála. Og á málþinginu verður sagt frá því, að íslensk stjórnvöld hafa oftar en einu sinni orðið að grípa til hennar.
Lesa meira
Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, opnaði nýja varastöð fyrir, Neyðarlínuna, Almannavarnir og Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar á Lögreglustöðinni á Akureyri sl. föstudag. 15. október kl.13:30, en þar er orðin stjórnstöð sem þjónar öllu landinu. Vaktstöð siglinga og stjórnstöð leitar og björgunar verður í sama húsnæði sem og stjórnstöð Almannavarnanefndar Eyjafjarðar.
Mikill metnaður heimamanna gerði þetta stórvirki að veruleika, og sá metnaður endurspeglaðist hvert sem litið var
Í gagnagrunni 112 eru allar neyðarsveitir og viðbragðsaðilar landsins. Þar á meðal eru öll umdæmi Vegagerðarinnar. Vegfarendur geta, hvar sem er á landinu, hringt í neyðarnúmerið 112 til að tilkynna eða koma áfram ábendingum t.d. ef vegir lokast vegna slysa, aurskriða, snjóflóða eða vegna annars sem heftir akstur um þjóðvegi landsins. Neyðarverðir 112 vinna eftir verklagi sem nær bæði til almennings eða frá skilgreindri neyðarsveit t.d. lögreglu..
Lesa meira
Erlendur ferðamaður var hætt kominn í sjónum fyrir neðan Vík í Mýrdal rétt fyrir kl. átta í kvöld. Maðurinn, 32 ára sundkennari frá Þýskalandi, var að synda í sjónum ásamt landa sínum í talsverðu brimi þegar aldan hreif hann með sér. Félagi mannsins reyndi að ná til hans en hann rak lengra út. Hljóp hann þá upp á þjóðveg og stöðvaði næsta bíl. Fólkið í honum, Íslendingar, brá skjótt við og hringdi í Neyðarlínuna, sem kallaði út lögreglu og björgunarsveitarmenn.
Lesa meira
Embætti lögreglustjórans í Reykjavík tekur í notkun frá og með 19. júlí ný símanúmer fyrir embættið. Öllum símanúmerum vegna borðsíma og gsm síma verður breytt. Lögreglustjórinn í Reykjavík er að taka í gagnið nýja Centrex símalausn frá Símanum í stað hefðbundinnar símstöðvar sem þýðir m.a. að öll símanúmer embættisins virka eins og innanhússímkerfi, bæði borðsímar og gsm símar. Um leið og farið er í þessa breytingu þó rétt að skipta alveg um símanúmer hjá embættinu til að nýta betur ýmsa möguleika Centrex kerfisins og einnig til að eiga næg númer á lausu í einni talnaseríu fyrir næstu ár.
Lesa meira
Á varðstofu 112 er rekin stjórnstöð Securitas. Á stjórnstöðinni taka neyðarverðir á móti boðum frá öryggiskerfum af ýmsu tagi svo sem innbrotakerfum, eldviðvörunarkerfum, neyðarhnöppum og öðrum boðgefandi kerfum, bæði frá heimilum og fyrirtækjum. Á milli 9.000 og 10.000 kerfi eru tengd stjórnstöðinni í dag. Stjórnstöðin hefur yfirumsjón með útköllum vegna þessarra kerfa allan sólarhringinn alla daga ársins. Á norðurlandi sér Securitas -Akureyri um vöktun og viðbragð vegna kerfa norðan heiða og á austurlandi sér útkallsþjónusta Securitas á Reyðarfirði um útköll og gæslu vegna kerfa og vöktunar m.a. í Fjarðabyggð.
Lesa meira
Síðustu daga hafa tvö banaslys orðið þar sem bifhjól áttu hlut að máli. Umræða er í gangi í þjóðfélaginu vegna þessara tveggja hörmulegu slysa. Örn Þ. Þorvarðarson og Ágúst Mogensen gerðu skýrslu, sem samvinnuverkefni Rannsóknarnefndar umferðarslysa, Bifhjólasamtaka lýðveldisins og Umferðarráðs, um bifhjólaslys á árunum 1991-2000 þar sem skoðuð voru um 800 bifhjólaslys sem urðu á þessum árum. Margt athyglivert kemur fram í skýrslunni er varðar bifhjólaslys, meiðsl bifhjólamanna og þróun þessarra slysa
Lesa meira
Svanborg VE, sökk um þrjár mílur utan við Vestmannaeyjar rétt eftir miðnætti í nótt,
almannavarna í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð þátt í æfingunni. Ásamt Flugmálastjórn tóku eftirtaldir aðilar þátt í æfingunni á vettvangi: Almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landhelgisgæslan, lögregla, Rauði kross Íslands, slökkvilið, sjúkraflutningamenn, sjúkrahúsið á Ísafirði og Tilkynningarskylda íslenskra skipa.
Lesa meira
Þann 1.mai 2004 hættir Hafþór Jónsson deildarstjóri Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra störfum sem slíkur og snýr sér til annarra starfa eftir 32 ára starf í þágu almannavarna. 112 þakkar honum samstarfið og einstaklega ljúf samskipti og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Landspítalinn mun veita ráðgjöf um læknisfræðileg álitaefni á öllum tímum sólarhringsins árið um kring og mun fara yfir og þróa verklagsreglur Neyðarlínunnar, sem lúta að svörun og viðbrögðum við slysum, sjúkdómum og öðru, sem snertir bráða heilbrigðisþjónustu. Þá mun spítalinn sjá um reglulega fræðslu fyrir starfsmenn Neyðarlínunnar. Brynjólfur Mogensen, sviðstjóri slysa- og bráðadeildar LSH, sem verður yfirlæknir um heilbrigðistengd málefni Neyðarlínunnar, sagði í viðtali að mjög mikil bráð heilsutengd starfsemi færi fram á Neyðarlínunni. ?Neyðarlínan þarf að hafa samstarfsaðila og hefur valið Landspítalann til þess að vera þessi bakhjarl, sem er nauðsynlegur.
Lesa meira
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organization - WHO) hefur tilnefnt 7. apríl ár hvert sem alþjóðlegan heilbrigðisdag. Dagurinn er ætlaður til þess að hvetja til umræðu og fanga athygli almennings á mikilvægum heilbrigðismálum. Kjörorð dagsins í ár er umferðaröryggi og markar dagurinn jafnframt upphaf alþjóðlegs umferðaröryggisárs. Í tilefni af alþjóðaheilbrigðisdeginum í ár hefur samstarfshópur opinberra aðila, fyrirtækja og félagasamtaka tekið saman skýrsluna Afbrot í umferðinni.
Lesa meira