Úr verklagi 112 vegna slökkviliða landsins
Við móttöku tilkynningar greinir neyðarvörður alvarleika innhringingar og boðar skv. því.
Greining aðstoðarbeiðna
Forgangur 1 er aðstoð sem er metin í efsta forgang og þar sem lífsbjörg og meiri háttar eignatjón ásamt fleiru kallar á tafarlausa afgreiðslu.
Forgangur 2 er aðstoð sem krefst skjótrar afgreiðslu. Full mönnun frá einni stöð eða full mönnun svæðisslökkviliðs. Td. eldur án beinnar lífsógnar, vatnsleki sem búið er að loka fyrir

Forgangur 3 er aðstoð sem krefst afgreiðslu. T.d. sinueldur án eignatjóns, þrif spilliefna eftir tjón. Tafarlaust Innhringingar til slökkviliðs
Neyðarverði ber að fylgja þeim verklagsreglum sem styðja hann í ákvarðanatöku og ná m.a. til:
Ef tilkynning kemur t.d. um eld ber að taka niður eftirfarandi upplýsingar:
- nákvæma lýsingu á staðháttum; s.s. fjölbýli, einbýli, iðnaðarhúsnæði
- hvort einhverjir séu í hættu, hvað brennur
- er hætta á frekari útbreiðslu
- sérstakar hættur s.s. olía, bensín, gas, hver lætur vita og hvaðan.
Ef að tilkynning er um slys þar sem þörf er á tækjabíl ber að taka niður eftirfarandi upplýsingar:
- staðsetning,
- hvort einhver sé fastur, ef svo er hvernig fastur og hversu margir.
- er hætta á að eldur komi upp
- ástand þess sem fastur er ( boðun sjúkrabíla eftir ástandi)
- vettvangslýsingu eins og hægt er.
Eftir að erindið hefur verið greint og staðsett, boðar neyðarvörður viðeigandi slökkvilið. Í boðunarferlinu er skilgreining fyrir hvert slökkvilið, hvernig boðun á að framkvæmast.
Neyðarverði ber t.d. að athuga hvort sér þörf á fullri mönnun í stærri atburðum og skal þá boðað eftir viðeigandi umfangi.
Eftir að slökkvilið hefur verið boðað getur neyðarvörður fengið nánari upplýsingar hjá innhringjanda og komið þeim áfram til slökkviliðs á viðbragðstíma.
Skýrslugerð
Neyðarvörður sér um stofnun á skýrslu vegna allra útkalla slökkviliða landsins. Viðkomandi slökkvilið setur sjálft í skýrslu fara allar tímasetningar, tilkynnanda útkalls, tegund útkalls og hverjir fara í útkallið.
Skýrsluformið er aðgengilegt öllum slökkviliðum eftir leiðum sem Brunamálastofnun hefur lagt þeim til.

