Slys
Greining slysa sem veikinda er alltaf skv. EMD kortum.
Niðurstaða greiningar ákveður forgang

Forgangur F1 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í efsta forgang og sem lífsógn. Sjúkrabíll og/eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri. T.d. þar sem allt tiltækt björgunarlið væri með aðkomu, stóreldur, fjöldaslys eða einstaklingsslys með alvarlegum áverkum.

Forgangur F2 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í næst efsta forgang. Sjúkrabíll og /eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri en aðeins í atburði án lífsógnar.

Forgangur F3 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin til afgreiðslu strax en án forgangs. Aðeins viðeigandi hluta björgunarliðs er kallaður, staðbundin aðgerð sem krefst hvorki forgangs eða fjölda manns.
Taka verður viðmið:
- staðsetningu í húsi,
- utandyra,
- af árstíma,
- hvar á landinu og
- auðveldustu aðkomu neyðarsveita.
- Fjallvegir gætu verið lokaðir.
- Eru bjargir nær en skilgreindar neyðarsveitir?
- Næstu sveitabæir?
Ef fjöldaslys eru þarf meira af flutningstækjum, læknum og öðrum björgum.
Athuga skal ástæðu fjöldaslysa og þá vettvang. Nota EMD og/eða AVD kort.
Neyðarvörður metur umfang skv. framkomnum upplýsingum.
Ef dagleg neyðarþjónusta svæðisins nær ekki yfir atvikið skal boða áhöfn og starfsmenn samhæfingarstöðvar. Það skal gert í samráði við bakvakt Almannavarnardeildar RLS. eða skv. mati, beint í útkall.
Varðstjóri 112 tekur ákvörðun um útkall.

