Erindi til 112

Erindi sem geta komið til 112 eru margskonar og ná m.a. til aðstoðarbeiðna vegna slysa, dauðsfalla, barnaverndarmála, veikinda, fæðinga, bilunar í veitukerfum, umhverfisslysa, bruna, vatnstjóna, árása, náttúruhamfara og sjóslysa svo eitthvað sé nefnt. Eðli mála samkvæmt gildir trúnaður um það verklag sem unnið er eftir og jafnframt gildir algjör trúnaður gagnvart þeim sem nýta sér aðstoð 112 og gagnvart neyðarsveitum landsins.

Gæðakerfi Neyðarlínunnar 112 innheldur um 450 verklagsreglur og skýringar og tekur sífelldri þróun vegna aðlögunar verklags að neyðarsveitum og almenningi landsins.

Undir þessum flokk verður reynt að sýna inn í það verklag sem neyðarverðir vinna eftir á þann hátt að lesandi fari fróðari frá eftir lestur.


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica