Fréttir frá 112

spurning1

Árleg könnun á ímynd 112 - 20.4.2011

Könnunin fór fram í mars og voru niðurstöður hennar jákvæðar eins og áður. Fjórar megin spurningar voru lagðar fyrir þátttakendur auk spurninga til frekari greiningar. Könnunin sýnir að almenningur er jákvæðari í garð 112 en almennt tíðkast hjá opinberum stofnunum og félagasamtökum.

Lesa meira
 
Gildin

Meira samstarf í öryggis- og neyðarþjónustu - 17.2.2011

Hugarflugsfundur samstarfsaðila í öryggis- og neyðarþjónustu var haldinn 10. febrúar síðastliðinn undir yfirskriftinni Samstarf í almannaþágu. Um eitt hundrað þátttakendur komu úr ýmsum áttum, bæði starfsfólk og sjálfboðaliðar, margir langt að komnir. Þeir eiga það sameiginlega markmið að tryggja almenningi í landinu eins vandaða og áreiðanlega þjónustu og unnt er þegar á bjátar.

Lesa meira
 

Ármann Gestsson er neyðarvörður ársins - 15.2.2011

Ármann Gestsson aðstoðarvarðstjóri 112 er neyðarvörður ársins 2010. Valið var kunngjört á 112-daginn og afhenti Dagný Halldórsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Ármanni viðurkenningu við athöfn í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Ármann er þriðji neyðarvörðurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu og er afhending hennar orðin meðal fastra liða í dagskrá sem jafnan er efnt til í Björgunarmiðstöðinni á 112-daginn

Lesa meira
 

Eldri fréttir


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica