Fréttir frá 112

Fréttatilkynning frá Og Vodafone og Neyðarlínunni

Og Vodafone og Neyðarlínan ganga frá samningi um að upplýsingar um staðsetningu Og Vodafone farsíma berist beint til 112

16.9.2005

Og Vodafone og Neyðarlínan hf., sem rekur neyðarnúmerið 112, hafa undirritað samning sem gerir 112 mögulegt að staðsetja farsíma viðskiptavina Og Vodafone þegar hringt er í 112. Stefnt er að því að ljúka tæknilegri útfærslu sem allra fyrst og virkja þjónustuna innan tveggja mánaða.

Ogvodafone2

Og Vodafone hefur hingað til rekið bakvakt tæknimanna allan sólarhringinn meðal annars til þess að tryggja að unnt sé að veita lögreglu og 112 upplýsingar um staðsetningu símatækja til þess að stytta viðbragðstíma í neyðartilvikum. Með því að tengjast kerfi 112 verður hægt að staðsetja farsíma í GSM kerfi Og Vodafone með enn meiri nákvæmni og í rauntíma. Kerfi 112 tryggir öryggi landsmanna og getur dregið verulega úr þeim tíma sem það tekur að koma fólki til hjálpar.

 

„Samningurinn er sérlega mikilvægur því hann gerir Neyðarlínunni mögulegt að staðsetja með talsverðri nákvæmni farsíma frá Og Vodafone í neyðartilvikum,“ segir Árni Pétur Jónsson forstjóri Og Vodafone. „Það er okkur mikið kappsmál að ljúka allri vinnu sem snýr að samningi við Neyðarlínuna svo að 112 geti tekið á móti merkjum frá GSM sendum Og Vodafone áður en langt um líður.“

 



Senda grein


Eldri fréttir


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica