112 uppfærir upptökubúnað
30.apríl s.l. var gengið frá kaupum 112 á fullkomnum upptökubúnaði vegna allra samskipta sem fara um neyðarrnúmerið 112. Búnaðurinn nær einnig til allra fjarskipta og mun nýtast m.a. Fjarskiptamiðstöð lögreglu, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og samhæfingarstöð Almannavarna.
Kaupverð búnaðar er rúmlega 10 milljónir og er söluaðili Nýherji.

