Beint í leiðarkerfi vefsins.
Vettvangsæfing á vegum Flugmálastjórnar var haldinn á Ísafirði í gær, laugardag, en að auki tók samhæfingarstöð almannavarna í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð þátt í æfingunni. Ásamt Flugmálastjórn tóku eftirtaldir aðilar þátt í æfingunni á vettvangi: Almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landhelgisgæslan, lögregla, Rauði kross Íslands, slökkvilið, sjúkraflutningamenn, sjúkrahúsið á Ísafirði og Tilkynningarskylda íslenskra skipa.
Í samhæfingarstöð almannavarna tóku þátt í æfingunni, neyðarverðir Neyðarlínunnar 112 með starfsfólki almannavarnadeildar og fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra, auk fulltrúa frá Flugmálastjórn, Landlækni, landsstjórn björgunarsveita, Rauða krossi Íslands og Vegagerðinni. .
Æfingin var velheppnuð, bæði á vettvangi og í Björgunarmiðstöð. Boðanir vegna þessa (æfingar)neyðaratburðar voru í höndum neyðarvarða og gekk sá hluti óaðfinnalega upp og skapaðist dýrmæt reynsla í þeirra hópi.