Fréttir frá 112

Securitas semur við Brunavarnir Suðurnesja

11.6.2004

Sigmundur Eyþórsson frá BS og Árni Guðmundsson frá Securitas undirrita samning um þjónustu öryggiskerfa Securitas á SuðurnesjumÁ varðstofu 112 er rekin stjórnstöð Securitas. Á stjórnstöðinni taka neyðarverðir á móti boðum frá öryggiskerfum af ýmsu tagi svo sem innbrotakerfum, eldviðvörunarkerfum, neyðarhnöppum og öðrum boðgefandi kerfum, bæði frá heimilum og fyrirtækjum. Á milli 9.000 og 10.000 kerfi eru tengd stjórnstöðinni í dag. Stjórnstöðin hefur yfirumsjón með útköllum vegna þessarra kerfa allan sólarhringinn alla daga ársins. Á norðurlandi sér Securitas -Akureyri um vöktun og viðbragð vegna kerfa norðan heiða og á austurlandi sér útkallsþjónusta Securitas á Reyðarfirði um útköll og gæslu vegna kerfa og vöktunar m.a. í Fjarðabyggð. Enn styrkir Securitas stöðu sína með styttingu viðbragðstíma og eykur þjónustig sitt gangnvart viðskiptavinum sínum á Suðurnesjum því nú í vikunni var gengið frá samningi við Brunavarnir Suðurnesja um að sinna útköllum og tengdum verkefnum fyrir fyrirtækið og viðskiptavini þess í Reykjanesbæ og næsta nágrenni.  Samningur þessi varðar samstarf um viðbragðsþjónustu vegna öryggiskerfa á Suðurnesjum sem Securitas hefur gert samning um fjarvöktun á og tengd eru til stjórnstöðvar fyrirtækisins í Reykjavík. Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum Securitas í fjargæslu með hvers konar öryggiskerfi, s.s. innbrotaviðvörunarkerfi, árásarhnappa, brunaviðvörunarkerfi og öryggishnappa, sambærilega þjónustu og íbúar höfuðborgarsvæðisins njóta varðandi útkallsþjónustu.

Starfsmenn BS sem munu vinna að þessari þjónustu, munu sækja námskeið hjá Securitas, þar sem þeir verða þjálfaðir í því að umgangast og vinna með öryggiskerfi frá fyrirtækinu og hvaða reglum þeim er ætlað að fylgja við vettvangsskoðun í tengslum við útköll til viðskiptavina fyrirtækisins. Almennt uppfylla starfsmenn BS sömu kröfur og viðhafðar eru í Reykjavík og allar kröfur um gæði þjónustunnar eru þær sömu og þar tíðkast.

Starfsmenn BS eru fagaðilar á sviði brunavarna og sjúkraflutninga og væntir Securitas mikils af þessum nýgerða samstarfssamningi og telur að það muni koma viðskiptavinum fyrirtækisins á svæðinu verulega til góða.

Á myndinni sjást Árni Guðmundsson forstöðumaður öryggisgæslusviðs Securitas og Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja við undirritun samningsins.



Senda grein


Eldri fréttir


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica