Gallupkönnun fyrir 112
Framkvæmdatími var >18. október - 2. nóvember 2004
Þetta var símakönnun og var 1350 manna slembiúrtak úr þjóðskrá tekið, fólk á aldrinum 16-75 ára af öllu landinu
Eftirfarandi eru spurningar sem lagðar voru fram
Sp. 1 Hvað er neyðarnúmerið fyrir lögreglu, slökkvilið, sjúkraflutninga og aðra viðbragðsaðila?
112 > 98,4%
Annað > 1,6%
Sp. 2 Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ertu gagnvart Neyðarlínunni - 112?
Neikvæð(ur) 0,5%
Jákvæð(ur) 95,8%
Bæði og/í meðallagi 3,7%
Sp. 3 Hefur þú þurft að hringja í Neyðarlínuna - 112?
Já > 29,2%
Nei > 70,8%
Sp. 4 Varstu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með hvernig leyst var úr þínu erindi?
Bæði og/í meðallagi > 4,3%
Ánægð(ur) > 87,9%
Óánægð(ur) >7,8%
Þetta er úrdráttur úr skýrslu Gallup sem unnin var fyrir okkur. Auðvitað tekur hún til fleiri atriða, t.d. hvernig notkunog viðhorf eru m.t.t. kyns, aldurs, tekna og menntunar en ofangreint eru lykiltölur sem er grunnurinn að frekari úrvinnslu og ánægjumælingu.
Þetta er einfaldlega frábært og mikil ánægja með það, að 112 hafi náð hæsta skori sem hægt er að ná hjá Gallup eða 4,7 á móti 4,5 sem var það hæsta áður
Til hamingju allir neyðarverðir 112, því það er ykkar vinna sem er í vogarskálunum.
Við þökkum þeim aðilum sem tóku þátt vinnu við þessa könnun og þá sérstaklega starfsfólki Gallup fyrir fagmannleg vinnubrögð.

