Fréttir frá 112

112 opnar varastöð á akureyri

18.10.2004

Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, opnaði nýja varastöð fyrir, Neyðarlínuna, Almannavarnir og Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar á Lögreglustöðinni á Akureyri sl. föstudag. 15. október kl.13:30, en Björn Bjarnason Dómsmálaráðherra opnaði 112 varðstofuna á Akureyriþar er orðin stjórnstöð sem þjónar öllu landinu. Vaktstöð siglinga og stjórnstöð leitar og björgunar verður í sama húsnæði sem og stjórnstöð Almannavarnanefndar Eyjafjarðar.

Mikill metnaður heimamanna gerði þetta stórvirki að veruleika, og sá metnaður endurspeglaðist hvert sem litið var, hvort sem var til lögreglu og slökkviliðsmanna sem manna stöður 112- AKUREYRI, iðnaðarmanna sem gerðu húsnæðið og aðstöðu tilbúna, yfirstjórn lögreglu og slökkviliðs, tæknifólks eða annars fagfólks sem kom að þessu.

Varastöðinni er ætlað að taka við hlutverki stjórnstöðvarinnar í Skógarhlíð í Reykjavík ef hún af einhverjum ástæðum verður óvirk og eins verður hægt að reka stöðvarnar samhliða. Björn Bjarnason Dómsmálaráðherra opnaði 112 varðstofuna á AkureyriVarastöðin hefur mikla þýðingu að því er fram kom í máli dómsmálaráðherra við opnun hennar, "með opnun þessarar stöðvar erum við að stíga skref til aukins öryggis í landinu" sagði Björn m.a. við opnunina. Hann sagði mikilvægt að varastöðin á Akureyri væri nú tilbúin og þar væri til staðar vel þjálfað starfsfólk þegar á þyrfti að halda. Skynsamlegt hefði verið af landfræðilegum ástæðum að setja stöðina upp á Akureyri og eins væri það þýðingarmikið þegar horft væri til þess að auka jafnvægi milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar.



 

 

Text Size Controls