Fréttir frá 112

Hröð viðbrögð og heppni

1.8.2004

Slysavarnafélagið LandsbjörgErlendur ferðamaður var hætt kominn í sjónum fyrir neðan Vík í Mýrdal rétt fyrir kl. átta í kvöld. Maðurinn, 32 ára sundkennari frá Þýskalandi, var að synda í sjónum ásamt landa sínum í talsverðu brimi þegar aldan hreif hann með sér. Félagi mannsins reyndi að ná til hans en hann rak lengra út. Hljóp hann þá upp á þjóðveg og stöðvaði næsta bíl. Fólkið í honum, Íslendingar, brá skjótt við og hringdi í Neyðarlínuna, sem kallaði út lögreglu og björgunarsveitarmenn.

Fólkið fór með manninum niður í flæðarmál þar sem kaðall var bundinn í hann og óð hann út til félaga síns og náði taki á honum og kom honum í land við illan leik. Þar var læknir kominn að, sem undirbjó manninn til flutnings en hann er á leiðinni á Landspítala-háskólasjúkrahús í Fossvogi.

Að sögn lögreglunnar í Vík mátti engu muna að Þjóðverjinn drukknaði en hann var orðinn mjög þrekaður og kaldur þegar hann náðist í land. Hann var aðeins klæddur sundskýlu.

Mun maðurinn hafa verið kominn út fyrir aðra öldu, eins og heimamenn orða það, en aldan í Víkurfjöru getur verið mjög þung og enginn mannlegur máttur mun ráða við þann ógnarkraft. Þá er sjórinn sandmettaður í fjöruborðinu, sérstaklega þegar brimar.

MBL 1.ágúst



Senda grein


Eldri fréttir


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica