Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skrifað hefur verið undir samning um að Slökkvilið Akureyrar annist þjónustuborð fyrir Neyðarlínuna 112 og er þjónustan þar með efld til muna á landsvísu.
Bæjarstjóri, Kristján Þór Júlíusson, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Akureyrarbæjar en Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, fyrir hennar hönd.
Undirskrift samningsins fór fram að viðstöddum yfirlögregluþjóni og öðrum lögreglumönnum í húsakynnum lögreglunnar við Þórunnarstræti þar sem þjónustuborðin eru til húsa.
Erling Þór Júlínusson, slökkviliðsstjóri, segir að það að manna þjónustuborð Neyðarlínu á Akureyri sé ánægjuleg viðbót og styrkur fyrir Slökkvilið Akureyrar. Þessi aukning muni án efa efla þessa þjónustu á landsvísu með öllum þeim möguleikum sem því fylgja að vera með tvær starfsstöðvar fyrir neyðarnúmerið 112.
-Akureyri.is