Að kveðja, Neyðarverðir VS
Þann 7. ágúst s.l. fluttu, Fjarskiptastöðin Gufunesi skiparadíó og Tilkynningaskylda íslenskra skipa, starfsemi sína í hús Neyðarlínunar 112 í Skógarhlíð og sameinuðust undir nafninu Vaktstöð siglinga, (VS). Starfsemin verður með óbreyttum hætti fyrst um sinn en gert er ráð fyrir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar (LHG) bætist í þennan hóp um n.k. áramót og mun þá Vaktstöð siglinga verða björgunarmiðstöð fyrir sæfarendur á norðurslóðum, auk þeirra starfa sem stöðinni er ætlað að sinna skv. lögum um vaktstöðina.
Við flutning starfseminar voru 17 starfsmenn, en 15. sept. s.l. létu af störfum fimm starfsmenn af þeim sautján.
Á meðfylgjandi mynd sjást starfsmennirnir í hófi sem haldið var þeim til heiðurs og kveðju.
Á myndinni eru talið frá vinstri. Kjartan Bergsteinsson, Lárus Helgason, Bogi Þórðarson,
Hrafn Helgason og Eysteinn Guðlaugsson.

