Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á hverjum sólarhring, alla daga ársins eru 800 til 1000 símtöl sem berast í gegnum neyðarnúmerið 112. Eins og gefur að skilja eru erindin jafn mörg og innhringingar. Í þessum fjölda eru flest símtöl "alvöruerindi" en svo eru einstaklingar sem gera sér leik að því að hringja inn erindisleysu og/eða gefa rangar upplýsingar um atburði sem eru tilhæfulausir.
Um allt land eru símasjálfsalar sem ókeypis er að hringja úr í 112. Úr sumum þeirra, bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan þess er mikil ánauð af erindislausum símtölum, yfirleitt í óvitaskap barna og unglinga. Símasjálfsalar sumra skóla landsins standa þarna uppúr yfir vetrarmánuðina. Þó að umrædd símtöl séu og geti skapað leiðindaálag eru önnur mun alvarlegri. Það eru símtöl sem koma frá fullorðnum einstaklingum sem koma vel fyrir í síma, eru rökfastir og styðja aðstoðarbeiðni sína með skýrum hætti. Björgunarlið er sent af stað, oft fjöldi manna á forgangsakstri í gegnum þunga umferð.
Sem dæmi má nefna að tilkynning barst 112 klukkan 19:20 í gær, að sést hefði til barns í sjónum úti fyrir Skeljagranda. Lögregla, sjúkralið og slökkvilið voru send á forgangsakstri en þegar fyrsti bíll kom á staðinn kom fljótlega í ljós að um gabb hafði verið að ræða og var öðrum snúið frá.
Í útkalli sem þessu er alltaf mikill viðbúnaður og voru kafarar og bátasveit Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins send ásamt lögreglumönnum með bát á vettvang, einnig voru aðrir kafarar slökkviliðsins sendir af stað frá stöðvum sínum ásamt sjúkrabíl og tækjabíl.
Þetta útkall átti sér ekkert tilefni, enga ástæðu, en svona útköll koma fyrir. Þau eru til skammar og eru litin alvarlegum augum af öllu vitibornu fólki.