Fréttir frá 112

Bifhjólaslys - alvara í umferðinni

8.6.2004

RNUSíðustu daga hafa tvö banaslys orðið þar sem bifhjól áttu hlut að máli. Umræða er í gangi í þjóðfélaginu vegna þessara tveggja hörmulegu slysa. Örn Þ. Þorvarðarson  og Ágúst Mogensen gerðu skýrslu, sem samvinnuverkefni  Rannsóknarnefndar umferðarslysa, Bifhjólasamtaka lýðveldisins og Umferðarráðs, um bifhjólaslys á árunum 1991-2000 þar sem  skoðuð voru um 800 bifhjólaslys sem urðu á þessum árum. Margt athyglivert kemur fram í skýrslunni er varðar bifhjólaslys, meiðsl bifhjólamanna og þróun þessarra slysa. Það er því góð hugmynd að jafnt almenningur, neyðarsveitir sem neyðarverðir skoði þessa skýrslu,  því að þarna eru til upplýsingar um slys sem oft geta verið mjög alvarleg þar sem óvarðir vegfarendur eiga í hlut.

5.6.2004 Banaslys varð á Garðbraut í Garði í gærkvöldi þegar ökumaður bifhjóls lést í árekstri við bifreið. Var hann fluttur með sjúkrabifreið þungt haldinn á Landspítalann í Fossvogi en úrskurðaður látinn þegar þangað kom. Tilkynning um slysið barst lögreglunni í Keflavík klukkan 20.39 í gærkvöldi og var sendur neyðarbíll frá Reykjavík eftir hinum slasaða.
Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá lögreglunni og urðu með þeim hætti að bifhjólinu og bifreiðinni var ekið norður Garðbraut. Ökumaður bifreiðarinnar hugðist snúa bifreið sinni við á veginum en þá var bifhjólinu ekið í hlið bifreiðarinnar. Ökumaður bifhjólsins var 42 ára karlmaður. Ekki er unnt að birta nafn hans að svo stöddu.

Innlent | Morgunblaðið

7.6.2004 Banaslys varð á fyrsta tímanum í nótt á Þingvallvegi við Skálafellsafleggjara. Ungur karlmaður, 25 ára, lést þegar bifhjól sem hann ók féll á annað hjól og í götuna. Talið er að maðurinn hafi misst stjórn á hjólinu. Hann ók aftastur í hópi bifhjólamanna er slysið varð. Lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning um slysið kl. 00:11 í nótt. Maðurinn er talinn hafa látist samstundis.

Innlent | Morgunblaðið

http://sniglar.is

http://umferd.is



 

 

Text Size Controls