Fréttir frá 112

Bergrisinn 2005

27.9.2005

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans stendur þann 21.- 23. október fyrir stórri allsherjaræfingu. Æfingin hefur hlotið nafnið Bergrisinn og tekur til hættu vegna hugsanlegra eldsumbrota undir Mýrdals- og Eyjafjallajöklum.

Æfingin kemur í kjölfar vinnu við gerð nýrrar viðbragðsáætlunar sem tekur á Kötluvá.

 

Markmið æfingarinnar er að hún sé sem raunverulegust og verkefni valin með hliðsjón af vandamálum sem líklegt er að komi upp í eldgosi.

 

Æfingunni er ekki eingöngu ætlað að undirbúa neyðarsveitir fyrir mögulegar náttúruhamfarir heldur einnig íbúa þess svæðis sem vísindamenn hafa spáð að verði helst fyrir barðinu á hlaupi, og/eða flóðbylgju í kjölfar eldgossins.

 

Katla gaust síðast að víst er talið árið 1918 og olli þá rosalegu hlaupi með vatnsmagni upp á 2-300.000 m3/sec. Hugsanlegt er að smágos hafi orðið árið 1955 en olli það engum skemmdum.

 

Ólíkt fyrri almannavarnaæfingum vegna Kötluváar er núna gert ráð fyrir möguleikanum á að flóðið gæti hlaupið til vesturs niður Markarfljótsaura og náð Hvolsvelli. Þetta er gert á grundvelli nýrra gagna.

 

Síða Bergrisans á vef Almannavarna



 

 

Text Size Controls