Fréttir frá 112

Ný starfsstöð lögreglunnar í Reykjavík

27.9.2005

Lögreglan í Reykjavík opnar nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjódd í dag, miðvikudaginn 28.september, en á sama tíma verður lögreglustöðinni í Völvufelli lokað.Neyðarlínan 112 óskar lögreglumönnum innilega til hamingju með nýja starfsstöð.Lögreglustjarna

Aðalvarðstjóri hefur verið skipaður til að veita stöðinni forstöðu og auglýst hefur verið eftir lögreglumönnum sem eingöngu munu vinna í Breiðholti. Auk þess er hverfislögreglumaður áfram starfandi í Breiðholti. Segir lögreglan, að þannig sé tekið upp sama fyrirkomulag á löggæslu og verið hafi í Grafarvogi undanfarin ár og gefist mjög vel.

Stjórnandi og hverfislögreglumaður eru starfandi á almennum dagvinnutíma en lögreglumenn frá stöðinni verða á vöktum frá hádegi og vel fram yfir miðnætti. Auk þess mun eftir sem áður almennri löggæslu og umferðarlöggæslu verða sinnt af lögreglumönnum sem eru á vakt allan sólarhringinn eins og verið hefur.

Neyðarnúmer nýju lögreglustöðvarinnar verður eins og annarra lögreglu landsins > 112

Laugardaginn 1.október milli kl.14:00 og 16:00 gefst Reykvíkingum og öðrum áhugasömum tækifæri til að skoða lögreglustöðina og kynna sér starf lögreglunnar í Reykjavík.



 

 

Text Size Controls