Beint í leiðarkerfi vefsins.
Með bréfi 26. september sl. óskaði lögreglustjórinn í Rangárvallasýslu eftir því að almannavarnaæfingunni Bergrisinn 2005, sem átti að halda 21. til 23. október nk., yrði frestað svo að lengri tími gæfist til að undirbúa viðbragðsaðila og íbúa í Rangárvallasýslu en mikil þátttaka heimamanna er mikilvæg fyrir góðan árangur æfingarinnar. Þetta er niðurstaða fundar lögreglustjórans með almannavarnanefnd og Rauða kross deild sýslunnar og Flugbjörgunarsveitinni á Hellu.
Ríkislögreglustjórinn kannaði afstöðu lögreglustjóranna í Vík, Vestmannaeyjum, Keflavík og á Selfossi til frestunar æfingarinnar. Þá var þetta rætt í Almannavarnaráði og vinnuhópi viðbragðsaðila til að undirbúa æfinguna, svokölluðum bakskipulagshópi. Að höfðu þessu samráði hefur ríkislögreglustjórinn ákveðið að fresta Bergrisanum 2005 og ný tímasetning æfingarinnar er 24. til 26. mars 2006. Undirbúningsvinna, sem búið var að skipuleggja áður en þessi ákvörðun var tekin, heldur áfram eins og gert hafði verið ráð fyrir að öðru leyti en því að ákveðnir verkþættir, s.s. þjálfun og undirbúningur viðbragðsaðila og aðgerða- og vettvangsstjórna, færist yfir á næsta ár.