Fréttir frá 112

Samningur á milli Ríkislögreglustjóra og 112 undirritaður

30.9.2005

Undirritaður var í dag samningur á milli fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar 112. Samningurinn tekur m.a. til verklags á milli starfsstöðva, samræmdri greiningu mála og viðbragðs. Verklagsreglur þessar eru settar um hlutverk og samskipti Neyðarlínunnar við fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Þær ber að skoða sem starfsfyrirmæli fyrir starfsmenn Neyðarlínunnar og fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra. Þær eru staðfestar af ríkislögreglustjóra og framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar af hálfu hvors aðila fyrir sig og taka gildi við undirritun.

RLS_112_undirritun

         Við undirritun í dag, f.v. Jón F. Bjartmarz, Haraldur Johannessen og Þórhallur Ólafsson

 

 

Text Size Controls