Námskeiðsdagar á hálendinu
Í hverjum mánuði fara neyðarverðir á námskeið eða í starfstengdar kynningar sem gerir þá hæfari í starfi. Námskeiðin – kynningarnar eru hluti af vinnuskyldu og fjalla í mörgum tilfellum um þær aðstæður sem viðbragðsaðilar og/eða almenningur geta lent í. Stundum fjallar þessi fræðsla um aukna neyðarþjónustu t.d. við virkjanasvæði Kárahnjúka, Hvalfjarðargöng, og Fáskrúðsfjarðargöng, eða heimsóknir eru til m.a. Alcan, Norðuráls, lögreglu, slökkviliða og heilsugæslu landsbyggðarinnar eða í stuttu máli, til allra sem starfa að neyðarþjónustu á landsvísu.
Nú í september fór starfsfólk 112 í Landmannalaugar ásamt leiðbeinanda frá Björgunarskólanum. Tilgangur ferðarinnar var að veita starfsfólki innsýn í störf björgunarsveitanna og þær aðstæður sem týndir og slasaðir til fjalla þurfa að glíma við. Fjallað var ítarlega um leit og björgun og var ekki bara bóklegt heldur fékk starfsfólk Neyðarlínunnar meðal annars að bera börur og fá innsýn í heim hins slasaða með því að skiptast á að vera sá sem borinn var. Þessi ferð var lærdómsrík fyrir alla neyðarverði og kunnum við Landsbjörgu og Björgunarskólanum miklar þakkir fyrir hvernig staðið var að ferðinni.
Athyglin er nú eingöngu bundin við hlustun og lærdóm af þeirri hlustun
Undirbúningur af líkamlegu erfiði, átök framundan!
Og nú er tekið á...
Eftirá.. þegar hugur og líkami er þreyttur... þá er að fá sér í svanginn......

