Eldvarnaátak LSS um land allt er hafið:
Öll átta ára börn fá margmiðlunardisk um eldvarnir heimilanna
Mánudaginn 21. nóvember hefja slökkviliðsmenn heimsóknir sínar í 3. bekk grunnskólanna. Þeir fræða börnin um eldvarnir og bjóða þeim að taka þátt í Eldvarnagetrauninni sem börnin leysa í samvinnu við fjölskyldur sínar. Að þessu sinni afhenda slökkviliðsmenn börnunum meðal annarsvandaðan margmiðlunardisk um eldvarnir heimilanna sem LSS hefur gefið út með stuðningi Tryggingamiðstöðvarinnar og Brunamálastofnunar.

Reynslan sýnir að börn eru mjög móttækileg fyrir fræðslu um eldvarnir og eru líkleg til þess að hafa áhrif á þær heimafyrir. Að átakinu loknu verður dregið úr réttum lausnum í Eldvarnagetrauninni og vegleg verðlaun afhent.
Vernharð Guðnason, formaður LSS, segir markmið átaksins að hvetja almenning til aðgerða í eldvörnum heimilanna til að draga úr líkum á tjóni á lífi og eignum vegna eldsvoða. Hann segir að reykskynjarar séu mikilvægasta forvörnin og þeir eigi fortakslaust að vera á hverju heimili í landinu.
Að jafnaði farast um tveir einstaklingar í eldsvoðum hérlendis á ári hverju. Eldsvoðar valda árlega eignatjóni uppá um einn og hálfan milljarð króna. Reynslan sýnir að líkur á eldsvoðum aukast talsvert á aðventunni vegna mikillar notkunar rafmagns og kertaljósa.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn leggja því áherslu á að allir tileinki sér grunnatriði eldvarna.

