Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð eykur notkun á landuplýsingum frá Landmælingum Íslands
Til þessa hafa venjuleg landakort verið notuð, en með samkomulaginu er stefnt að því að auka notkun á stafrænum kortum, gervitunglamyndum og öðrum landupplýsingum sem Landmælingar Íslands hafa yfir að ráða. Gögnin munu þannig nýtast þeim sem kallaðir eru út vegna slysa, eldsvoða, löggæslu, leitar, björgunar og náttúruhamfara hvort sem er á landi, sjó eða í lofti. Samstarf þetta er þróunarverkefni í þágu almannaöryggis og stendur yfir í 6 mánuði.

Samkomulagið undirrituðu f.v., Georg Lárusson frá Landhelgisgæslunni,Magnús Guðmundsson frá Landmælinum Íslands, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Jón Gunnarsson frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og Þórhallur Ólafsson frá Neyðarlínunni
Þeir sem að samkomulaginu standa munu vinna að því að innleiða kort og aðrar stafrænar landupplýsinga frá Landmælingum Íslands til notkunar í gagnagrunn Neyðarlínunnar 112, Fjarskiptamiðstöðvar lögreglu, Vaktstöðvar siglinga, Samhæfingarstöðvarinnar og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Markmið þessa er að bæta og auka upplýsingar til viðbragðsaðila auk þess sem viðbragðsaðilar skuldbinda sig að miðla til Landmælinga Íslands athugasemdum sem berast vegna gagnanna svo sem um örnefni, vegi eða mannvirki.

