Ný heimasíða
Nú fer í loftið ný heimasíða Neyðarlínunar 112. Hér mun verða að finna fróðleik og upplýsingar sem snúa að almenningi, neyðarsveitum og öðru sem okkur finnst að eigi að koma fyrir almenningssjónir og snýr að neyð og öryggismálum landsmanna. Starfsmenn Neyðarlínunnar bera mikla ábyrgð sem tengiliðir almennings við neyðarsveitir landsins, heimasíðunni er ætlað að gefa innlit í störf þeirra.
Heimasíðan er hönnuð og búin til af Hugsmiðjunni en efni unnið af starfsmönnum 112. Heimasíður eiga að vera lifandi, taka breytingum og þróast en það mun vera sýn okkar starfsmanna að heimasíðan eigi eftir að taka þróun og breytingum í takt við auknar kröfur og ábendingar frá ykkur sem lesið og fylgist með.

