Ljósmyndasýningin Útkall 2007
Ljósmyndasýningin Útkall 2007 var opnuð í göngugötunni í Kringlunni (1. hæð) föstudaginn 8.febrúar kl. 14.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, opnaði sýninguna með ávarpi og var fulltrúum fjölmiðla boðið að vera við opnunina. Sýningin er haldin í tilefni af 112-deginum og stendur til 18. febrúar. Á henni er úrval ljósmynda af lögreglu, slökkviliðum, björgunarsveitum og fleiri viðbragðsaðilum að störfum og gefur hún góða innsýn í margvísleg viðfangsefni þeirra á síðasta ári.
Ljósmyndasýningin hefur verið haldin í tengslum við 112-daginn (11. febrúar) frá því hann var fyrst haldinn hér á landi 2005. Myndirnar eru 22 talsins að þessu sinni og eru eftir fréttaljósmyndara á Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, Víkurfréttum o.fl.
Ljósmyndararnir lána myndirnar án endurgjalds og kann Neyðarlínan þeim bestu þakkir fyrir það.

Stefán Eiríksson Lögreglustjóri Höfuðborgarsvæðisins opnar sýninguna

