Fengu vegleg verðlaun í Eldvarnagetrauninni á 112-daginn
Fríður hópur barna úr 3. bekk grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu fékk afhent verðlaun fyrir þátttöku sína í Eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við athöfn sem fram fór í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð á 112-daginn sem var í gær. Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS, og Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri afhentu krökkunum verðlaunin að viðstöddu fjölmenni.
LSS efndi til Eldvarnaátaks í nóvember 2007 í samstarfi við TM, Brunamálastofnun, SHS og önnur slökkvilið, 112 og fleiri aðila. Slökkviliðsmenn heimsóttu nær alla grunnskóla landsins, fræddu átta ára börn um eldvarnir og öryggismál og gáfu þeim kost á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2007.
Einstaklega góð þátttaka var í Eldvarnagetrauninni, sem einnig birtist í barnablaði Morgunblaðsins og í Eldvarnablaðinu. Nöfn 34 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Vegleg verðlaun eru veitt að vanda: Viðurkenningarskjal, vandaður MP3 spilari, reykskynjari o.fl.
LSS og TM þakka þeim fjölmörgu sem aðstoðuðu við Eldvarnaátakið en þó sérstaklega þeim mikla fjölda barna sem tók virkan þátt í Eldvarnagetrauninni. Sverrir Björn segir það samdóma álit þeirra sem stóðu að verkefninu að það hafi heppnast afar vel og forvarnagildi þess sé ótvírætt.


