Fyrsti bíll björgunarsveitarinnar Dýra á Þingeyri
Neyðarlínan afhendir Kristjáni formanni Dýra bílinn
Björgunarsveitin Dýri á Þingeyri fékk í dag afhentan bíl sem sveitin fjárfesti í fyrir skömmu. Bíllinn, sem af gerðinni Nissan Patrol, árgerð 2000, er fullbreyttur fyrir 44 tommu dekk, og var keyptur af Neyðarlínunni sem styrkti kaupin á bílnum.
Þetta er fyrsti bíll sveitarinnar á Þingeyri og því stór áfangi í sögu sveitarinnar. Með tilkomu bifreiðarinnar getur sveitin nú sinnt fjölbreyttari verkefnum á sínu svæði en áður
Myndin er tekin þegar Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunni afhenti Kristjáni Gunnarssyni, formanni Dýra, þann 19. mars 2008.

