Beint í leiðarkerfi vefsins.
Við svörum án tafar.
Við meðhöndlum allar innhringingar sem neyðarsímtöl og svörum alltaf á fyrstu þrem hringingunum.
Þegar við svörum kynnum við okkur.
Til að þú hafir vissu fyrir því að þú hafir fengið rétt samband, kynnum við að hringt hafi verið í 1-1-2.
Við sýnum kurteisi.
Okkar hlutverk er að sýna alltaf stillingu, fyllstu kurteisi og nærgætni. Við forðumst að sýna óþolinmæði, þótt komið geti í ljós við nánari skoðun, að símtalið þitt eigi ekki beint erindi við 1-1-2. Við útskýrum stuttlega hvert hlutverk 1-1-2 er og leiðbeinum þér áfram ef tök eru á því.
Við sýnum áhuga.
Við höfum áhuga á þeim upplýsingum, sem þú hefur fram að færa. Okkar starf felst í því að taka við upplýsingum, greina þær og meðhöndla á sem markvissastan hátt.
Við viljum eiga frumkvæðið.
Eftir að við höfum greint erindi þitt, þurfa neyðarverðir 1-1-2 að hafa frumkvæði í samtalinu. Við leitumst við að beina samtalinu inn á þá braut, að aflað sé nauðsynlegra upplýsinga sem snúa að erindi þínu á sem stystum tíma og sem nýst gætu við úrvinnslu þess.
Við útskýrum hugsanlegan biðtíma og/eða símtalsflutning.
Ef að við þurfum að leita upplýsinga eða af öðrum ástæðum þarf að setja þig á bið, útskýrum við fyrir þér ástæðuna fyrir biðinni. Sama gildir um símtalsflutning; þ.e. við upplýsum þig um það, hvert símtalið verði flutt.
Við erum þér til aðstoðar.
Ef þú lendir í neyð eða í kemst í þannig uppnám, að erfitt er að greina erindi þitt, getur tekið nokkurn tíma að komast að því, hvað raunverulega er að gerast. Undir þannig kringumstæðum sýnum við fyllsta skilning og nærgætni. Við leiðum þig í gegnum erfiðar aðstæður og erum þér til aðstoðar. Ef til vill getur þú haft í huga hvort einhver annar er á staðnum sem gæti aðstoðað þig við símtalið. Við skiljum þær aðstæður sem þú ert í þegar þú bíður hjálparliðs.
Við erum vel þjálfaðir neyðarverðir.
Við komum öll úr störfum sem snúa að neyðaraðstoð, t.d. frá slökkviliði, lögreglu, öryggisgæslu eða björgunarsveitum. Við uppfyllum ströng skilyrði við ráðningu og eftir ítarlega byrjunarþjálfun, m. a. hjá öllum gerðum neyðarsveita, er endurmenntun og áframhaldandi þjálfun hluti af starfskyldu okkar.
Við erum með öll nauðsynleg hjálpargögn.
Okkur til aðstoðar erum við með einn fullkomnasta upplýsingagrunn í heimi. Hann byggist m.a. á landfræðilegum upplýsingum, staðsetningu innhringinga og öðru efni sem nýtist til að greina aðstæður þínar og umhverfi, hvar sem er á Íslandi. Boðunarkerfi okkar sér til þess að hægt sé að ná í neyðarsveit hvenær sem er og hvar sem er. Aðstoðargögn okkar við greiningu erinda eru upprunalega sótt til Bandaríkjanna, en eru sérhæfð að okkar aðstæðum og að okkar þekkingu. Læknisfræðilegur bakhjarl okkar er Landspítali – háskólasjúkrahús.