Fréttir frá 112

Logo_112dagurinn2009

112 dagurinn 2009

9.2.2009

112 Dagurinn hefur verið haldinn árlega síðan 2005 og ber hann ávallt upp á 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi hinna fjölmörgu neyðarþjónustuaðila sem tengjast því, efla vitund almennings um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig þjónustan nýtist almenningi. Að deginum standa Neyðarlínan, Ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir. Að þessu sinni verður sjónum beint sérstaklega að öryggi og velferð barna og ungmenna. Markmiðið er annars vegar að halda á lofti því víðtæka öryggis- og velferðarkerfi sem börn og ungmenni hafa aðgang að í gegnum neyðarnúmerið en hins vegar að benda á leiðir fyrir börn og ungmenni til þess að taka þátt í starfi samtaka á þessu sviði og stuðla að eigin öryggi og annarra, meðal annars með þekkingu í skyndihjálp og eldvörnum.

Sjá dagskrá og kynningarefni dagsins.



 

 

Text Size Controls