Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á 112-deginum í síðustu viku veitti Neyðarlínan í fyrsta sinn viðurkenningu fyrir frammistöðu í neyðarvörslu. Að þessu sinni var neyðarvörður ársins (2008) valinn neyðarvörður sem hafði besta boðunartímann á árinu 2008. Ástæðan fyrir því að þetta atriði í starfi neyðarvarðar var látið vega svo þungt er að á árinu 2008 var mikil vinna lögð í að lækka boðunartíma og þótti því við hæfi að veita þeim sem bestum árangri náði viðurkenningu. En þess má geta að boðunartími allra neyðarvarða hefur lækkað mikið og árangurinn í heild sinni, sem skiptir mestu máli, tekið stórstígum framförum.
Neyðarvörður ársins 2008 var Sigurður Viðar Ottesen og var honum veitt viðurkenning í móttökunni á 112-deginum. Nafn hans verður því fyrsta nafnið á viðurkenningaskildi sem hengdur verður upp á varðstofunni og nöfn neyðarvarða ársins hverju sinni verða færð inn á.
Opna EMD kort